Frans páfi kallar forseta Palestínu „friðarengil“ Bjarki Ármannsson skrifar 16. maí 2015 23:58 Frans páfi tók á móti Mahmúd Abbas, forseta Palestínu, í Vatíkaninu í dag. Vísir/EPA
Frans páfi tók á móti Mahmúd Abbas, forseta Palestínu, í Vatíkaninu í dag, stuttu eftir að tilkynnt var um að Vatíkanið myndi viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki. Páfinn kallaði Abbas „friðarengil“ er hann heiðraði hann með minnispeningi. Abbas er um þessar mundir í opinberri heimsókn í Vatíkaninu í tilefni þess að á morgun stendur til að taka í dýrlingatölu tvær palestínskar nunnur sem uppi voru á 19. öld. Að því er BBC greinir frá ræddu þeir Páfinn og Abbas saman í einrúmi áður en Páfinn afhenti Abbas svo minnispening með mynd af friðarengli. „Þetta er viðeigandi, því þú ert sjálfur friðarengill,“ á Páfinn að hafa sagt. Á miðvikudag var tilkynnt um það að Vatíkanið hyggðist skrifa undir samstarfssamning við Palestínu sem felur í sér viðurkenningu á sjálfstæði palestínsks ríkis. Yfirvöld í Ísrael fordæmdu þá yfirlýsingu og segja hana koma í veg fyrir að viðræður þeirra við Palestínustjórn geti náð árangri. Talið er að Vatíkanið vilji með samningnum standa vörð um eigur kaþólsku kirkjunnar á yfirráðasvæði Palestínu.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira