Skora á yfirvöld í Paragvæ að leyfa 10 ára stúlku að fara í fóstureyðingu Birgir Olgeirsson skrifar 2. maí 2015 21:57 Vísir/Getty
Alþjóða mannréttindasamtökin AmnestyInternational hafa birt ákall til yfirvalda í Paragvæ þar sem skorað er á stjórnvöld að leyfa tíu ára stúlku að undirgangast fóstureyðingu. Stúlkan er sögð barnshafandi eftir að hafa verið nauðgað af stjúpföður sínum. Samkvæmt lögum í Paragvæ eru fóstureyðingar aðeins leyfilegar ef meðgangan ógnar lífi móðurinnar. Heilbrigðisráðuneyti Paragvæ segir ekkert benda til þess að líf stúlkunnar sé í hættu en hún er sögð gengin 22 vikur. Fjölskylda stúlkunnar hefur hins vegar farið fram á að hún fái að undirgangast aðgerðina og nýtur þessi krafa fjölskyldunnar nú stuðnings AmnestyInternational. Samtökin segja aldur stúlkunnar eiga að veita undanþágu frá þessum lögum og gagnrýna að ekki sé undanþáguákvæði vegna nauðgana. Líkja samtökin því við pyntingu að ætla að neyða stúlkuna til að eignast barnið. „Yfirvöld í Paragvæ geta ekki setið aðgerðalaus á meðan þessi stúlka er neydd til að þola frekari angist og kvöl,“ segja samtökin. Læknar komust að því að stúlkan væri barnshafandi eftir að hún hafði leitað til læknis vegna verkja í kviði. Það varð til þess að lögreglan hóf rannsókn á máli stúlkunnar og hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur stjúpföður hennar sem er á flótta, að því er fram kemur á vef bandarísku fréttastofunnar CNN. Móðir stúlkunnar er nú í haldi lögreglunnar en hún á yfir höfði sér ákæru fyrir að vanrækslu gagnvart dóttur sinni.
Mest lesið Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fannst heill á húfi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fella niður 64 milljarða sekt Trump Erlent Gjörólíkt gengi frá kosningum Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira