Eru hjónabönd samkynhneigðra varin af stjórnarskrá? Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar 29. apríl 2015 11:43 Stuðningsmenn hjónabanda samkynhneigðra fyrir utan hæstarétt Bandaríkjanna. vísir/epa
Hjónabandið hefur í þúsundir ára um heim allan táknað samband karls og konu „og allt í einu viljið þið að níu manneskjur breyti því með lagasetingu,“ sagði Stephen G. Breyer hæstaréttardómari í Washington í gær. Umræða í hæstarétti Bandaríkjanna um hvort hjónabönd samkynhneigðra væru varin af stjórnarskrá fór fram í gær en hún er talin geta markað tímamót þar í landi. Í umfjöllum New York Times um málið kemur fram að þær spurningar sem hæstaréttardómarinn Anthony M. Kennedy velti upp hafi gefið stuðningsmönnum hjónabands samkynhneigðra ástæðu til bjartsýni. Hann virtist þó tvístígandi og vildi fara varlega í málið. Aðrir dómarar stóðu fast á sinni skoðun og vörpuðu umræðurnar ljósi á ólíka sýn þeirra á söguna, hefðir, líffræði og túlkun stjórnarskrárinnar. Kennedy setti fram þau rök gegn hjónaböndum samkynhneigðra að lítil reynsla væri komin á þau í samanburði við hefðbundin hjónabönd. Síðar lýsti hann þó yfir áhyggjum sínum af því að útiloka samkynhneigð pör frá hjónabandinu sem stofnun. Kennedy sagði að samkynhneigð pör segðust skilja helgi hjónabandsins. „Þau vita að þau geta ekki fjölgað sér en vilja samt eiga hlutdeild í hjónabandinu til að sýna að þau séu virðingarverð.“ Fjölmiðlar vestanhafs túlka þetta sem svo að Kennedy telji þessi rök gild.Fjölmiðlar ávarpaðir fyrir utan hæstarétt Bandaríkjannavísir/epaHelstu rökin gegn hjónaböndum samkynhneigðra voru að hjónabönd snérust ekki um ást heldur um lagalegan rétt barna gagnvart líffræðilegum foreldrum sínum. Eins var bent á að samkynhneigðir væru ekki að leitast eftir að verða hluti af hjónabandinu sem stofnun heldur vildu þeir breyta því sem stofnunin raunverulega er. Þeir sem aðhylltust hjónabönd samkynhneigðra bentu á að samkynhneigðir eignuðust líka börn. Einnig bentu þeir á að málið snérist um grundvallarmannréttindi. Þeir bentu á að þó skilgreiningin á hjónabandi yrði útvíkkuð þannig að hún ætti einnig við um pör af sama kyni, hefði það engin skaðleg áhrif á hjónabönd gagnkynhneigðra.Rabbínar mótmæla fyrir utan hæstarétt í Washingtonvísir/afpUmræðurnar hafa vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Bæði fylgjendur og andstæðingar hjónabanda samkynhneigðra biðu dögum saman fyrir utan dómshúsið í von um að fá sæti í dómssalnum og fylgjast með umræðunum. Hjónabönd samkynhneigðra eru nú þegar lögleg í 37 af 50 fylkjum Bandaríkjanna. Umræðurnar snérust um hvort 14. grein stjórnarskrárinnar, sem kveður á um að allir séu jafnir fyrir lögum, megi túlka á þann hátt að öllum fylkjum sé skylt að leyfa hjónabönd samkynhneigðra.
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent Handtekinn vegna stunguárásarinnar Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent