Mannréttindaskrifstofa Íslands gefur þúsund bækur Atli Ísleifsson skrifar 13. apríl 2015 12:10 Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Bjarni Jónsson, formaður framkvæmdastjórnar Mannréttindaskrifstofunnar takast í hendur. Mynd/Mannréttindaskrifstofa Íslands
Mannréttindaskrifstofa Íslands afhenti á fimmtudaginn Landbókasafni/Þjóðarbókhlöðu bókasafn sitt að gjöf. Í tilkynningu frá Mannréttingaskrifstofunni segir að frá stofnun skrifstofunnar hafi bókasafnið verið í uppbyggingu og margir leitað í það eftir heimildum og upplýsingum. „Titlar bókasafnsins eru nú ríflega þúsund talsins, þar af helmingur tímarit, árbækur og skýrslur ýmiss konar. Formleg afhending bókanna fór fram í Landsbókasafni/Þjóðarbókhlöðu að viðstöddu starfsfólki og stjórnarfólki Mannréttindaskrifstofu Íslands og hluta úr starfshópi safnsins. Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð stofnun sem vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. Mestur hluti bókanna er á ensku en einnig talsvert á Norðurlandamálunum og lítið eitt á frönsku, þýsku og spænsku. Síðustu ár hefur heimsóknum í bókasafnið fækkað og með gjöfinni vill skrifstofan auka aðgengi almennings að fræðiefni um mannréttindi.Við afhendinguna sagði Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, að gjöfin innihaldi heilmikið af merkilegu efni, til dæmis gott safn af nýjum og verðmætum lögfræðibókum. Margt af efninu var ekki til á safninu áður og gjöfin því mikill fengur fyrir safnið og þá sér í lagi þar sem ekki var fyrir mikið efni um mannréttindi á safninu. Bjarni Jónsson, formaður framkvæmdastjórnar Mannréttindaskrifstofunnar sagði að hugmyndin að því að gefa bókasafnið hafi kviknað fyrir nokkrum misserum og að Landsbókasafnið hafi alltaf verið fyrsti kostur. Með því að fela Landsbókasafninu varðveislu safnsins vill skrifstofan auka aðgengi að þeim vísi að sérhæfðu safni sem þetta þó er svo það muni gagnast fræðasamfélaginu, en einnig áhugafólki um mannréttindi, á skilvirkari hátt. Landsbókasafnið merkir hverja bók sem bókagjöf frá Mannréttindaskrifstofu Íslands,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira