Ólétt af fjórburum: „Maður lætur ekki 65 ára gamla konu ganga með fjögur börn“ Stefán Árni Pálsson skrifar 14. apríl 2015 10:16 Annegret Raunigk á fyrir þrettán börn með fimm mismunandi mönnum. Vísir/bild/skjáskot „
Náttúrulega séð er ekki eðlilegt að 65 ára gömul kona verði þunguð,“ segir Arnar Hauksson kvensjúkdómasérfræðingur, en ótrúlegt tilfelli er komið upp í Þýskalandi þar sem 65 ára grunnskólakennari er ólétt af fjórburum. Konan heitir Annegret Raunigk og á fyrir þrettán börn með fimm mismunandi mönnum. Settur dagur er eftir um tvo mánuði en hún mun fara á eftirlaun á næstunni. „Það fer vissulega eftir líkamlegri heilsu hennar hvort þetta sé í raun hættulegt en það er margfalt meira álag fyrir 65 ára gamla konu að ganga með barn en tvítuga. Það að ganga með fjórbura er enn meira álag og hættulegra.“Hér má sjá mynd af Raunigk sem tekin var þegar hún var 55 ára.mynd/facebookBörnin hennar þrettán eru á aldrinum níu til 44 ára en konan segir í þýskum miðlum að hún hafi ákveðið að eignast annað barn þegar níu ára dóttir hennar sagðist vilja yngra systkini. Raunigk segir í samtali við Bild að hún hafi gengist undir tæknifrjóvgun á stofnun utan Þýskalands og hefur það verið harðlega gagnrýnt. „Þetta hljómar eins og hún hafi ekki fengið meðferð hjá virtri stofnun, maður lætur ekki 65 ára gamla konu ganga með fjögur börn. Börnin geta samt sem áður alveg verið heilbrigð ef fylgst er vel með, sem hlýtur að hafa verið gert með litningaprófum og fleira.“
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira