Innlent

Hætt við að kostnaður við millidómstig verði of mikill

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Réttarfarsnefnd telur hætt við að aukinn kostnaður við stofnun nýs millidómstigs muni vaxa fjárveitingarvaldinu í augum og jafnvel koma í veg fyrir nauðsynlegar breytingar á dómskerfinu. Nefndin leggur því til að kannaðir verði aðrir og ódýrari kostir.

Ráðist í breytingar í áföngum

Nefnd sem innanríkisráðherra skipaði í ágúst 2013 til að semja reglur um upptöku millidómstigs skilaði ráðherra tillögum sínum í síðasta mánuði. Nefndin gerir tillögu um að nýr dómstóll, Landsréttur, verði settur á stofn og þar muni starfa 15 dómarar. Dómurum við Hæstarétt yrði um leið fækkað úr níu í sex. Innanríkisráðherra óskaði eftir umsögn réttarfarsnefndar um tillögurnar, en nefndin hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar á sviði réttarfars. 

Í umsögn réttarfarsnefndar kemur fram að stofnkostnaður við nýjan Landsrétt muni nema háum fjárhæðum. Í ljósi þess að erfitt hafi reynst að fá aukin fjárframlög til dómstólanna á síðustu árum sé hætt við að hinn aukni kostnaður muni vaxa fjárveitingarvaldinu í augum og jafnvel koma í veg fyrir að breytingar verði gerðar á skipan dómstólanna á næstu árum. Því telur réttarfarsnefnd rétt að kannaðir verði aðrir og ódýrari kostir. 

Annars vegar leggur nefndin til að ráðist yrði breytingarnar í áföngum, til dæmis með því að sex dómarar tækju til starfa við Landsrétt í upphafi og mál sem kæmu til kasta dómstólins yrðu að sama skapi færri. Mál sem kæmu til kasta Hæstaréttar yrðu þannig fleiri og því væri ástæðulaust að fækka dómurum við Hæstarétt í þessum fyrsta áfanga.


Lítil samstaða um tillögur nefndarinnar

Hins vegar leggur réttarfarsnefnd til leið sem hún telur enn einfaldari í sniðum og þar með mun ódýrari, en hún felur í sér að komið yrði á fót vísi að millidómstól. Í sinni einföldustu mynd gæti slíkur dómstóll verið skipaður dómsforseta auk tveggja héraðsdómara sem tækju sæti í hverju máli auk forseta. 

Það er því óhætt að segja að lítil samstaða virðist vera um þær leiðir sem nefnd innanríkisráðherra leggur til, bæði varðandi upptöku millidómstigs og einnig um breytingar á fyrirkomulagi við skipan dómara við Hæstarétt. Innanríkisráðherra hefur sagt að hún muni ekki leggja fram frumvarp um þessi mál á vorþingi en þau gætu hugsanlega litið dagsins ljós í haust.

Tengdar fréttir

Alþingi mun staðfesta skipun dómara við nýtt millidómstig - Landsrétt

Stefnt er að því að nýtt millidómstig, sem tekið verður upp á Íslandi, muni bera heitið Landsréttur. Verður það sérstakur áfrýjunardómstóll fyrir allt landið sem mun létta þunganum á Hæstarétti ef tillögur nefndar sem vinna frumvarp um málið ná fram að ganga. Alþingi mun þurfa að staðfesta skipun 15 dómara við hinn nýja dómstól sem er alveg ný aðferðafræði við skipun dómara hér á landi.

Vill millidómsstig og færri hæstaréttardómara

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vill að þegar í stað verði hugmynd um millidómstig hrint í framkvæmd. Það dómstig þurfi bæði að fjalla um einkamál og sakamál. Kostnaðurinn við það sé mun minni en margir telji.

Vilja flytja héraðsdóm af Lækjartorgi

Lagt hefur verið fram bréf þar sem borgin óskar eftir viðræðum við innanríkisráðuneyti um flutning Héraðsdóms Reykjavíkur af Lækjartorgi, á Lögreglustöðvarreitinn við Hlemm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×