Holland reif sig í gang og lagði Evrópumeistarana Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. mars 2015 20:38 Davy Klaassen fagnar marki sínu. vísir/getty
Fjögur af þeim fimm liðum sem eru með Íslandi í A-riðli undankeppni EM 2016 spiluðu vináttulandsleiki í kvöld. Lettar, sem gerðu gott jafntefli við Tékka um helgina, gerðu aftur jafntefli í kvöld á útivelli gegn Úkraínu. Oleg Gusev kom heimamönnum í Úkraínu yfir en Vitalijs Maksimenko bjargaði jafntefli fyrir Lettana með marki í uppbótartíma. Lettar líta betur út þessa dagana en þegar Ísland mætti liðinu í vetur. Tyrkir unnu sigur, en nauman þó, á smáþjóðinni Lúxemborg á útivelli. Tyrkir gerðu jafntefli við Holland í undankeppni EM um helgina og voru að spila vel. Mevlut Erding kom Tyrkjum yfir á fjórðu mínútu en Mario Mutsch jafnaði fyrir heimamenn á 31. mínútu leiksins. Tyrkirnir náðu ekki að skora sigurmarkið fyrr en þrjár mínútur voru til leiksloka en það skoraði Hakan Calhanoglu, leikmaður Bayer Leverkusen. Lokatölur, 2-1. Slóvakar hafa verið í miklu stuði í undankeppninni og unnið alla sína leiki. Þeir héldu áfram að vinna í kvöld og lögðu Tékka, 1-0. Tékkland er eina liðið sem hefur tekið stig af Íslandi í A-riðli undankeppninnar. Ondrej Duda skoraði eina mark leiksins á 49. mínútu, en komist Ísland á EM virðist nokkuð líklegt að Slóvakar verði einnig í Frakklandi miðað við hvernig þeir eru að spila. Hollendingar spiluðu stærsta leikinn en þeir tóku á móti Evrópumeisturum Spánar á Amsterdam Arena í Amsterdam í kvöld. Holland hefur átt í vandræðum í undankeppninni en þeir rifu sig í gang í kvöld og unnu 2-0 sigur. Stefan de Vrij og Davy Klaassen skoruðu mörkin á 13. og 16. mínútu. Þá gerðu Kasakar góða ferð til Rússland og nældu í markalaust jafntefli, en þeir fengu skell af hálfu strákanna okkar í Astana um helgina, 3-0.
Fótbolti Mest lesið „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Þriðji sigur Liverpool í röð Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti Lést í miðjum leik Fótbolti Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Íslenski boltinn Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Íslenski boltinn Viktor Gísli áfram í stuði Handbolti Fleiri fréttir Börsungar að stinga af Þriðji sigur Liverpool í röð Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Arsenal - Newcastle | Skytturnar geta endurheimt toppsætið Man. City - Southampton | Dýrlingarnir fá krefjandi verkefni í undanúrslitum Bayern München - Barcelona | Glódís mætir Börsungum Valur - Grindavík/Njarðvík | Nýliðarnir heimsækja Hlíðarenda Þór/KA - FH | Bæði lið tekið töluverðum breytingum Fanney hélt hreinu og Häcken vann fyrri úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Lést í miðjum leik Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Bellerín braut hjörtu Madrídinga Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Flest mörk í 67 ár Uppgjörið: Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Sjá meira