Skátar þurfa ekki lengur að sverja Guði hollustu Bjarki Ármannsson skrifar 21. mars 2015 21:11 Skátar taka þátt í hátíðarhöldunum á 17. júní síðastliðnum. Vísir/Daníel
Skátaþing, sem nú stendur yfir á Selfossi, hefur samþykkt breytingartillögu á skátaheitinu sem felur það í sér að skátar þurfa ekki lengur að sverja Guði og ættarjörðinni hollustu. Tillagan var samþykkt með um sjötíu prósentum atkvæða. „Þetta er búið að vera mjög lengi í vinnslu,“ segir Arnór Bjarki Svarfdal skáti. „Það hafa verið umræður um þetta á síðustu fimm Skátaþingum, þetta er búið að vera í vinnuhóp á vegum Skátabandalagsins og það hafa verið gerðar skoðanakannanir á því hvaða orðalag og innihald fólki þykir best. Þetta er orðið held ég fimm ára ferli.“ Skátaheitið hefur hingað til innihaldið orðalagið: „Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að gera skyldu mína við Guð og ættjörðina.“ Nú mega skátar hins vegar ráða því hvort þeir segi „Guð“ eða „samvisku“ og þá hvort þeir segi „ættjörðina“ eða „samfélagið.“ Arnór segir að mjög mörgum hafi þótt orðalagið eins og það var úrelt. „Svo eru auðvitað margir sem þykir heitið mjög mikilvægt og þykir vænt um það,“ segir Arnór. „En það eru alls ekki allir og við höfum mörg haft það á tilfinningunni að það væri stór hópur sem vildi fá þessu breytt.“ Margar tillögur um breytingar á þessu orðalagi hafa verið lagðar fram og felldar. Arnór segir þær hafa verið misróttækar en þessi sé í mildari kantinum. „Ég myndi að segja að hún sé mjög lík skátaheitinu eins og það var,“ segir hann. „En þó mikilvæg breyting.“ Skátaþing stendur áfram yfir á morgun, en það sækja fulltrúar allra skátafélaga á landinu og greiða atkvæði um ýmisleg málefni.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira