Sænskri fegurðardrottningu haldið nauðugri á Ítalíu í hálft ár Atli Ísleifsson skrifar 23. mars 2015 14:51 Konan hafði áður tekið þátt í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Alheimur. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Ítalskur karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að hafa haldið 23 ára sænskri konu fanginni í íbúð norður af borginni Mílanó síðan í september. Maðurinn er grunaður um að hafa ítrekað nauðgað konunni og beitt hana annars konar ofbeldi.Í frétt Corriere della Sera segir að konan hafi áður tekið þátt í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Alheimur. Hún hélt til Ítalíu síðasliðið haust til að starfa sem fyrirsæta og komst þá í samband við mann á fimmtugsaldri sem sagðist vera umboðsmaður. Hann hafi svo platað hana til að fylgja sér heim til sín þar sem hann lokaði hana inni.Í frétt sænska ríkissjónvarpsins segir að konan hafi sloppið um helgina eftir að nágrannar greindu lögreglu frá því að öskur hafi heyrst úr húsinu. Þegar lögregla kom á vettvang sagði maðurinn, sem er 42 ára, að hann og kærasta hans hafi verið að rífast. Lögregla ruddist þá inn á heimilið þar sem konan fannst, blá og marin. Að sögn ítalskra fjölmiðla var konan í svo slæmu ásigkomulagi þegar lögreglan fann hana að hún hafi vart verið þekkjanleg. Maðurinn á að hafa heimilað konunni að hafa samband við fjölskyldu sína um Skype og Facebook, en hann fylgdist þó grannt með öllum slíkum samskiptum. Maðurinn hefur áður afplánað fjögurra ára dóm fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot. Þá hélt hann átján ára hvít-rússneskri konu fanginni í sama húsi í bænum Cinisello Balsamo, um tíu kílómetrum norður af Mílanó. „Hann virtist vera vingjarnlegasti maður í heimi,“ á konan að hafa sagt í yfirheyrslu hjá lögreglu. Konan er nú í áfalli og hefur verið lögð inn á sjúkrahús vegna vannæringar og örmögnunar. Sænska utanríkisráðuneytið hefur staðfest að sænsk kona hafi orðið fyrir ofbeldisbroti á Ítalíu og að fjölskyldu hennar hafi verið gert viðvart. Þau eru nú á leið til konunnar.
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Fleiri fréttir Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Sjá meira