Á flótta undan lögreglu en sagði frá felustaðnum á Snapchat Samúel Karl Ólason skrifar 25. mars 2015 14:08 Christopher Wallace fannst í skáp á heimili sínu. Vísir/Gety/Fógetaembættið í Sumerset
Lögregluþjónar í Sumarset í Bandaríkjunum fundu eftirlýstan mann þar sem hann hafði falið sig í skáp á heimili sínu. Lögreglan hafði leitað að honum í nokkrar vikur þar sem hann var eftirlýstur fyrir innbrot. Á sunnudagskvöldið sendi hann þó frá sér skilaboð á Snapchat, um að hann væri kominn aftur heim til sín. Lögreglan komst á snoðir um skilaboðin og sendi lögregluþjóna á heimili hans sem fóru að leita að honum. Þá sendi hann önnur skilaboð og sagði að lögregluþjónar væru heima hjá honum, en hann væri að fela sig í skáp. Lögregluþjónarnir voru látnir vita og fundu þeir hann strax. Kærasta hans var einnig handtekin þar sem hún hafði logið að lögreglumönnum og sagði að Christopher væri ekki þar. „Við leit í eldhússkápnum fannst matur, pottar og pönnur og tveir fætur,“ segir á Facebook síðu fógetaembættisins í Sumerset. Frásögn af atvikinu var birt þar en hana má sjá hér að neðan. „Fæturnir voru fastir við manneskju og sú manneskja var Christopher Wallace. Hann var færður úr skápnum og handtekinn.“ Yfirmenn embættisins staðfestu þessa frásögn við vefinn Central Maine.Good morning. How are you? I'm fine. Thank you for asking.The big news of the morning is...Christopher Wallace was...Posted by Somerset County Sheriff's Office on Monday, March 23, 2015
Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Sjá meira