Þingkosningar í Ísrael: Búist við að það verði mjótt á munum Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2015 11:44 Benjamin Netanyahu greiddi atkvæði í Jerúsalem í morgun. Vísir/AFP
Þingkosningar fara fram í Ísrael í dag. Fyrirfram er búist við að mjótt verði á munum milli Likud-flokks Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra og Sambands síonista, bandalags mið- og vinstriflokka. Samband síonista heita því að vinna að bættum samskiptum Ísraels og Palestínumanna og alþjóðasamfélagsins almennt. Fylgi flokks Netanyahu hefur mælst nokkuð minna en Sambands síonista í skoðanakönnunum síðustu daga. Í gær þvertók Netanyahu fyrir að stofnað yrði sjálfstætt ríki Palestínumanna, fengi hann endurnýjað umboð í kosningunum.Í frétt BBC segir að efnahagsmál og almenn lífsgæði ísraelskra borgara hafi verið helstu málin í kosningabaráttunni.Langar stjórnarmyndunarviðræður framundan Kjörstaðir opnuðu í morgun og verður lokað klukkan 20 að íslenskum tíma. Reiknað er með að úrslit verði kynnt fljótlega eftir að kjörstaðir loka, en búist er við að stjórnarmyndunarviðræður muni taka langan tíma. Netanyahu hefur gegnt embætti forsætisráðherra landsins síðastliðin sex ár. Enginn flokkur hefur nokkurn tímann náð hreinum meirihluta á ísraelska þinginu og er ekki búist við að Likud-flokkur Netanyahu eða Samband síonista muni hvor um sig ná meira en fjórðung þingsæta. Hinn 65 ára Netanyahu rak á síðasta ári tvo ráðherra úr ríkisstjórn sinni þar sem hann sakaði þá um að grafa undan stjórninni. Hann boðaði í kjölfarið til þingkosninga í þeirri von að geta myndað nýja ríkisstjórn.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Innlent Húsnæði fundið undir brottfararstöð Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Fleiri fréttir Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Sjá meira