Á sakaskrá vegna 0,03 gramma af kannabis Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 17. nóvember 2015 06:00 Kolbrún ræddi um refsingar og löggjöf vegna fíkniefnabrota á málþingi um kannabis á dögunum. Hún veltir fyrir sér hvort gera þurfi breytingar á refsingum. Vísir/Valgarð
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara fjallaði fyrir helgi um löggjöf og refsingar fyrir fíkniefnabrot á málþingi Fræðslu og forvarna um kannabis. Á málþinginu velti hún upp þeirri spurningu hvort minnstu brot vegna vörslu fíkniefna ætti að tilgreina í sakavottorði. Í dag fer dómur eða viðurlagaákvörðun fyrir vörslu fíkniefna inn á sakaskrá sama hversu brotið er lítið. Hafi máli lokið með sekt er það tilgreint í sakavottorði í þrjú ár. „Menn eru mjög uppteknir af sakavottorðinu, það er eins og við megum bara ekki sækja um vinnu eða fara til útlanda án þess að framvísa sakavottorði. Ég hef ekki verið beðin um að framvísa sakavottorði neins staðar,“ sagði Kolbrún og sagði helst óskað eftir sakavottorðum á grundvelli barnaverndarlaga. „En eiga þessi brot að koma fram á sakavottorði? Er eðlilegt að 50 þúsund króna sekt vegna vörslu efna sem menn eru teknir með, sem eru ef til vill bara 0,03 grömm af kannabis, komi fram í sakavottorði? Þá er ekki verið að finna nema leifar af efni hjá viðkomandi. Þetta er samt brot og það er sektað fyrir það. Þá veltir maður því fyrir sér hvort það sé eðlilegt að setja slíkt inn,“ sagði Kolbrún og bar slík brot saman við umferðarlagasektir en þar er ákveðið lágmark á sektum áður en til þess kemur að greina frá viðurlagaákvörðun í sakavottorði. „Það eru bara sektir hærri en hundrað þúsund krónur sem skráðar eru í sakavottorð.“ Kolbrún segir ekki eðlilegt að embættismenn taki ákvörðun um að afnema slíkar skráningar. „Ég held að það sé mjög eðlilegt að þetta sé pólitísk ákvörðun.“ Kolbrún ræddi einnig almennt um refsiramma fíkniefnabrota og rifjaði upp umdeildan dóm þar sem burðardýr fékk ellefu ára fangelsisdóm. „Það fór eiginlega allt á hliðina. Það er mikil gerjun í þessari umræðu og ég held að það sé mjög jákvætt. Vonandi verða íslensk stjórnvöld með í þeirri umræðu. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt.“ Hún ræddi einnig um ýmis vandkvæði í sambandi við refsingar fyrir fíkniefnabrot. Ekki sé refsivert að flytja ný fíkniefni til landsins. „Það þarf sífellt að vera að bæta inn á þessa lista nýjum og nýjum fíkniefnum. Við höfum lent í því að innflutningur á þessum efnum, sem eru ný og eru ekki á þessum listum, er ekki refsiverður,“ segir Kolbrún. Málþingið var haldið í samstarfi við Embætti landlæknis og velferðarráðuneyti.
Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Innlent „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent Fleiri fréttir Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Sjá meira