Staða ríkis og sveitarfélaga batnar hratt Heimir Már Pétursson skrifar 12. mars 2015 11:45 Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Hagstofunnar batnaði tekjuafkoma ríkis og sveitarfélaga um 29 milljarða milli áranna 2013 og 2014. vísir/stefán
Tekjuafkoma ríkis og sveitarfélaga batnaði mikið á síðasta ári borið saman við árið á undan og batnar afkoman um 29 milljarða milli ára. Innheimtur tekjuskattur ríkissjóðs af einstaklingum og fyrirtækjum hefur ekki verið eins mikill og hann var í fyrra frá hruni efnahagslífsins. Hagstofan hefur sent frá sér bráðabirgðauppgjör á fjármálum hins opinbera fyrir árið í fyrra. En með hinu opinbera er átt við ríki og sveitarfélög. Á síðasta ársfjórðungi ársins 2014 var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 7,7 milljarða króna sem er mun betri staða en árið á undan þegar afkoman var neikvæð um 15,3 milljarða. Árið í fyrra var í heildina einnig mun betra en árið 2013. Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 3 milljarða króna árið 2014 eða um 0,2% af landsframleiðslu. Til samanburðar var afkoman neikvæð um 32 milljarða króna árið 2013 eða 1,7% af landsframleiðslu. Þarna er bati upp á 29 milljaðra króna.Tekjur hins opinbera námu um 903 milljörðum króna og hækkuðu um 13,3% milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 45,3% samanborið við 42,4% árið 2013. Útgjöld hins opinbera voru 906 milljarðar króna 2014 og jukust um 9,3% milli ára en hlutfall þeirra af landsframleiðslu fór úr 44,1% í 45,4%. Tekjuafkoma bæði ríkis og sveitarfélaga hrundi á árunum 2008 og 2009 sem hlutfall af landsframleiðslu en hefur batnað hratt allt frá árinu 2010 og er nú að komast í jafnvægi. Það vekur hins vegar athygli að skattekjur ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu óx í fyrra þrátt fyrir skattalækkanir ríkisstjórnarinnar. Þannig var tekjuskattur ríkissjóðs á einstaklinga og lögaðila 18 % af landsframleiðslu í fyrra og hefur hlutfallið ekki verið jafn hátt frá því fyrir hrun. Á fyrstu fimm árunum eftir hrun var þetta hlutfall á bilinu 14,8 til 16,8 prósent. Munar þar mestu um tekjuskatt á lögaðila sem var 3 prósent af landsframleiðslu í fyrra, en 2,2 prósent árið 2013 og 1,9 prósent árið 2012. Tekjuskattur einstaklinga sem hlutfall af landsframleiðslu var 13,8 prósent í fyrra og hefur ekki verið svo hátt frá því fyrir hrun.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira