Íbúar Aleppo sagðir upplifa gífurlegar þjáningar Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2015 10:30 Mannréttindasamtökin biðla til uppreisnarhópa og stjórnarhermanna að hætta vísvitandi árásum á saklausa borgara. Vísir/EPA
Íbúar borgarinnar Aleppo í Sýrlandi eru sagðir hafa upplifað gífurlega þjáningar og að stríðandi fylkingar í landinu brjóti grimmilega á mannréttindum þeirra. Rannsókn Amnesty International hefur leitt í ljós að stríðsglæpir stjórnvalda séu svo algengir og kerfisbundnir að í raun séu þeir glæpir gegn mannkyninu. Mannréttindasamtökin biðla til uppreisnarhópa og stjórnarhermanna að hætta vísvitandi árásum á saklausa borgara. Stjórnarherinn hefur sett aukinn kraft í loftárásir á borgina síðustu vikur til að bregðast við sókn uppreisnarmanna. Meðal þess sem stjórnarherinn er sagður hafa notað til loftárása eru svokallaðar tunnusprengjur. Útskýringu BBC á tunnusprengjum má sjá hér að neðan.Al-Assad forseti Sýrland þvertekur fyrir að slík vopn hafi verið notuð af sínum mönnum. Amnesty segir hins vegar í skýrslu sinni að svo sé. Að minnsta kosti tíu, þar á meðal fjögur börn, létust á sunnudag þegar ein slík féll á barnaheimili í borginni. Amnesty fullyrðir að á meðal skotmarka síðustu vikna hafi verið almenningsmarkaðir, samgöngumiðstöðvar, moskur, skólar og spítalar. Á vef BBC kemur fram að rannsóknin hafi leitt í ljós að flugvélar og þyrlur stjórnarhersins hafi gert markvissar loftárásir gegn uppreisnarmönnum í Aleppo frá janúar 2014 til mars 2015. Að þeir hafi fyllt olíutunnur, eldsneytistanka og slíkt með sprengiefnum og sprengiflísum og varpað þeim á borgina.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Sjá meira