Vísindamenn keppast við tímann: Sudan sá eini karlkyns eftir af sinni tegund Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 20. apríl 2015 00:05 Hér má sjá Sudan en mikið veltur á honum og getu hans til þess að geta afkvæmi. Vísir/AFP
Aðeins einn hvítur karlkyns nashyrningur af tegundinni sem kennd er við áttina norður er eftir á jörðinni svo vitað sé. Hann heitir Sudan og býr í Keníu. Tegundin er alveg við dyr útrýmingar og því veltur mikið á að Sudan eignist afkvæmi með annarri hvorri kvenkyns skepnunni af sömu tegund sem búa á sama svæði. Þar vinna sérfræðingar að því statt og stöðugt að viðhalda tegundinni. Fylgst er með dýrunum allan sólarhringinn af vopnuðum varðmönnum. Nashyrningar eru í mikilli hættu vegna þess að Asíubúar telja horn þeirra geta læknað hina ýmsu sjúkdóma. Sérfræðingar segja ólöglega sölu á hornum nashyrninga arðbærari heldur en eiturlyfjasölu. Sudan er telst gamall á mælikvarða nashyrninga en hann er 42 ára. Kvenkyns nashyrningarnir á sama verndarsvæði og Sudan eru ungar, önnur heitir Fatu og hún er 15 ára og hin heitir Najin og er 25 ára. Þrátt fyrir að dýrin séu hraust og heilbrigð gæti aldur Sudan gert vísindamönnum erfitt fyrir þegar kemur að því að fjölga tegundinni. Þetta segir George Paul, dýralæknir hjá verndunarsvæðinu. Hann gæti því mögulega ekki átt náttúruleg mök við kvenkyns nashyrningana. Auk þess er sæðisfjöldi hans lágur sem flækir málin enn frekar. Najin gæti orðið þunguð en fætur hennar geta kannski ekki borið fullvaxta karlkyns nashyrning. Ef enginn getnaður verður bráðlega er óhjákvæmilegt að hvítir nashyrningar úr norðri þurrkist alveg út af jörðinni. Hvíti nashyrningurinn úr norðri getur ekki átt afkvæmi með svörtum nashyrningi en mögulega gæti tegundin eignast afkvæmi með hvítum nashyrningi úr suðri. Þrátt fyrir að afkvæmið yrði ekki hreinræktað væri það betra en ekkert samkvæmt vísindamönnum.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Útlendingum fækkað það sem af er ári Innlent Fleiri fréttir Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Sjá meira