Ofbeldi lögregluþjóna á svörtum hermanni leiddi til mikilla mótmæla - Myndband Samúel Karl Ólason skrifar 4. maí 2015 16:51
Myndband af lögregluþjónum veitast að svörtum hermanni í Tel Aviv í Ísrael leiddi til mikilla mótmæla í gær. Meira en þúsund gyðingar af eþíópískum uppruna mótmæltu á götum borgarinnar og til átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu. Lögreglan segir 57 lögreglumenn hafa særst og tólf mótmælendur. Að mestu voru meiðsli þeirra þó minniháttar en samkvæmt CNN voru 43 mótmælendur handteknir. Á myndbandinu má sjá hvernig lögreglumenn réðust á hermann af eþíópískum uppruna. Hann stendur á götunni við hjól sitt og lögregluþjónn veður að honum og snýr hjólinu við og ýtir honum í hina áttina. Ekkert hljóð er á myndbandinu svo ekki liggur fyrir hver segir hvað en lögregluþjónninn ræðst mjög fljótt að hermanninum sem heitir Damas Pakada, og slær hann nokkrum sinnum og rífur hann niður í jörðina. Annar lögreglumaður kemur hinum fljótlega til hjálpar. Talsmaður lögreglunnar í Tel Aviv segir að búið sé að segja öðrum lögregluþjóninum upp. Mótmælendur halda því fram að mjög illa sé komið fram við gyðinga frá Eþíópíu, en samtals eru þeir um 125 þúsund í Ísrael. Þau segja að þeim líði eins og annars flokks borgurum. Fjöldi Eþíópíubúa komu til Ísrael á níunda og tíunda áratugunum.
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent Fleiri fréttir Grunuð um tilraun til manndráps Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Sjá meira