Kafari baðst afsökunar Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 7. september 2015 07:00 Skipið Rainbow Warrior sökk í höfninni í Aukcland árið 1985. NordicPhotos/Getty
Jean-Luc Kister, kafari frönsku leyniþjónustunnar, baðst í gær afsökunar á árás á skipið Rainbow Warrior, flaggskip Grænfriðunga. Er þetta í fyrsta sinn sem Kister biðst opinberlega afsökunar á árásinni, sem átti sér stað þann 10. júlí árið 1984, en í árásinni lést portúgalski ljósmyndarinn Fernando Pereira. Kister kom fram í sunnudagsþætti sjónvarpstöðvarinnar TVNZ og sagði hann markmið aðgerðanna ekki hafa verið að drepa neinn skipverja og að hann vildi biðja fjölskyldu Pereira, þá meðlimi Grænfriðunga sem um borð voru og nýsjálensku þjóðina afsökunar. Grænfriðungar mótmæltu kjarnorkuvopnatilraunum Frakka á Mururoa-eyju í Suður-Kyrrahafi og átti Rainbow Warrior að sigla til eyjunnar. Árásin átti sér stað í höfninni í Auckland á Nýja-Sjálandi eftir að Kister hafði komið tveimur sprengjum fyrir í skut skipsins, sem sökk samstundis. „Við urðum að fylgja skipunum, við vorum hermenn,“ sagði Kister sem sagði árásina jafnframt hafa verið óréttláta. Kister vann ásamt tólf manna teymi sem starfaði fyrir frönsku leyniþjónustuna DGSE og voru tveir starfsmenn leyniþjónustunnar sóttir til saka fyrir árásina, þeir Dominique Prieur og Alain Mafart, sem handteknir voru í Nýja-Sjálandi og dæmdir í tíu ára fangelsi. Þeir játuðu báðir glæpinn og sátu að endingu inni í tvö ár.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira