Svíar taka lénið af síðu The Pirate Bay 26. maí 2015 07:00
Héraðsdómur Stokkhólms felldi í gær dóm um að þekktasta lén ólöglegu sænsku niðurhalssíðunnar The Pirate Bay, thepiratebay.se, yrði gert upptækt. Sænska ríkið er nú skráð eigandi lénsins sem og varalénsins piratebay.se. Þetta er í fyrsta skipti sem sænskur dómstóll fjarlægir lén af netinu. Samkvæmt dómnum má stofnunin sem heldur utan um lén í Svíþjóð ekki selja lénið áfram til annars aðila. Málið var höfðað gegn Punkt SE, stofnuninni sem heldur utan um sænsk lén. Punkt SE hélt því fram við réttarhöldin að sú leið að loka fyrir lén væri röng og myndi ekki skila árangri í baráttunni gegn ólöglegu niðurhali. Lögreglan í Svíþjóð lokaði á svipaðan hátt síðu The Pirate Bay í vetur en ekki leið á löngu þar til hún spratt upp aftur. Talsmenn síðunnar segja að það sama verði uppi á teningnum núna. Síðan muni einfaldlega flytja sig yfir á eitt fjölmargra léna sinna sem ekki hafi verið lokað. Sýslumaðurinn í Reykjavík lagði í nóvember síðastliðnum lögbann á að Síminn veitti aðgang að síðunni sem og íslensku síðunni Deildu.net í gegnum lénin deildu.net, deildu.com, iceland.pm, thepiratebay.se, thepiratebay.sx og thepiratebay.com. Þær síður eru hins vegar enn aðgengilegar á öðrum lénum en voru bönnuð. Í framhaldinu lokuðu önnur fjarskiptafyrirtæki fyrir aðgang að sömu lénum.
Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Stúlkan sem leitað var að er fundin Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Fleiri fréttir Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Sjá meira