Brutu gegn börnum og kúguðu foreldranna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. ágúst 2015 21:29 Fjölskyldur í Pakistan hafa látið reiði sína í ljós undanfarna daga vegna málsins. Vísir/AP
Lögregluyfirvöld í Pakistan hafa handtekið 12 manns sem sakaðir eru um að hafa tekið þátt í umfangsmiklum kynferðisbrotum gegn að minnsta kosti 280 börnum. Talið er að mennirnir hafi tekið tekið upp á myndbönd er börnin voru kynferðislega misnotkuð og nýtt myndböndin til þess að kúga fé út úr foreldrum þeirra. Málið hefur vakið hörð viðbrögð í Pakistan, báðar deildir pakistanska þingsins samþykktu einróma ályktun þar sem brotin voru fordæmd og hefur Nawas Sharif, forsætisráðherra Pakistan, lofað miskunnarlausum aðgerðum gegn gerendunum. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar í Punjab-héraði en brotin voru að mestu framin í þorpinu Hussain Khanwala. Lögreglan taldi ásakanirnar vera tilhæfulausar í fyrstu. Lögmaður þolenda hefur ásakað lögregluyfirvöld um að hafa dregið lappirnar í rannsókn málsins en sum myndböndin eru frá árinu 2007. Einnig telur lögmaðurinn að lögreglan sé að vernda gerendur. „Lögreglan er að vernda glæpamennina, hún styður þá og hefur veitt þeim tækifæri á að flýja frá þorpinu.“ Í síðustu viku rannskaði lögreglan málið að beiðni héraðsyfirvalda. Niðurstaðan var sú að ásakanir væru tilhæfulausar en þrýstingur frá yfirvöldum, fjölmiðlum og mannréttindahópum gerði það að verkum að málið var rannsakað frekar. Saba Sadiq, yfirmaður Barnaverndayfirvalda í Punjab-héraði sagði að þetta væri stærsta kynferðisbrotamál gegn börnum í sögu Pakistan.
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fannst heill á húfi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Fleiri fréttir Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Sjá meira