Vilja að fangar geti áunnið sér rétt til atvinnuleysisbóta Atli Ísleifsson skrifar 28. mars 2015 14:25 Silja Dögg Gunnarsdóttir er þingkona Framsóknarflokksins. Vísir/Pjetur
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram frumvarp til breytinga á atvinnuleysistryggingum (bótarétt fanga). Í tilkynningu frá Silju Dögg segir að lagt sé til að ef fangi hefur stundað nám, vinnu eða starfsþjálfun til samræmis við lög um fullnustu refsinga, þá teljist hann tryggður samkvæmt atvinnuleysistryggingalögum, þaðer eins og hann hefði verið í launaðri vinnu á sama tímabili. „Meðal skilyrða þess að einstaklingar hafi rétt til atvinnuleysisbóta, er að þeir hafi fengist við launuð störf eða verið sjálfstætt starfandi á tilteknu ávinnslutímabili áður en sótt er um atvinnuleysisbætur. Flestum þeim sem afplána refsivist eða sitja í gæsluvarðhaldi stendur ekki til boða vinna, nema að mjög takmörkuðu leyti, og ávinna sér því ekki rétt til atvinnuleysisbóta meðan á vistinni stendur. „Af þessu leiðir að oftar en ekki standa fangar utan atvinnuleysistryggingakerfisins þegar þeir ljúka afplánun og því viljum við, sem að málinu stöndum, breyta. Við teljum að sú breyting myndi auka möguleika þeirra sem sitja af sér refisdóma, að koma undir sig fótunum og verða góðir og gildir samfélagsþegnar. Menn ættu þá einnig kost á starfsendurhæfingu, eins og þeirri sem Virk býður upp á og hefur skilað góðum árangri. Með þessu værum við að tengja nokkur kerfi saman, horfa heildstætt á málin og finna lausn til frambúðar. Við erum sannfærð um að þessi lagabreyting myndi fækka endurkomum í fangelsi landsins og það hlýtur að vera samfélagslegt markmið í sjálfu sér,“ segir Silja Dögg. Flutningsmenn tillögunnar eru Páll Valur Björnsson, Brynhildur Pétursdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Elsa Lára Arnardóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Björt Ólafsdóttir, auk Silju Daggar.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira