Segir umhverfismat aldrei hafa farið fram Svavar Hávarðsson skrifar 1. október 2015 07:00 Hagalón Hvammsvirkjunar yrði fyrir ofan stíflu stutt fyrir ofan Viðey í Þjórsá en eyjan var friðlýst árið 2011. Fréttablaðið/vilhelm
Umhverfismat fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá, samkvæmt núgildandi lögum, hefur aldrei farið fram. Þetta segir Orri Vigfússon, formaður NASF, í bréfi til Skipulagsstofnunar. Því er það mikið virðingarleysi við náttúruna að hans mati að Hvammsvirkjun hafi verið færð í nýtingarflokk rammaáætlunar. Rök Orra eru að árið 2003 var gert umhverfismat fyrir svokallaða Núpsvirkjun sem síðan hefur verið gjörbreytt – en matið hefði getað nýst í sameiginlegt umhverfismat á þeim þremur virkjunarframkvæmdum í neðri hluta Þjórsár sem nú eru fyrirhugaðar – en auk Hvammsvirkjunar eru Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun enn í biðflokki og til meðferðar hjá verkefnisstjórn rammaáætlunar. Eins og kunnugt er var Hvammsvirkjun færð úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar með samþykkt Alþingis í júlí 2015 eftir flýtimeðferð verkefnisstjórnarinnar. Þetta segir Orri ótækt enda hafi forsendur breyst, lífríki árinnar hafi tekið stakkaskiptum, laxgengd stóraukist og miklar breytingar hafi orðið á atvinnuháttum í ljósi stóraukins straums ferðamanna til landsins. Sé ætlunin að halda Hvammsvirkjun til streitu þarf nýtt umhverfismat, er niðurstaða Orra í ítarlegri samantekt um málavöxtu. Afstaða Landsvirkjunar er að mat á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar hafi legið fyrir árið 2003, en síðan þá hafa umtalsverðar rannsóknir farið fram á svæðinu. Hins vegar hefur verið óskað eftir ákvörðun Skipulagsstofnunar um það hvort endurtaka þurfi matið frá 2003, enda heldur umhverfismat vegna fyrirhugaðs virkjunarkosts að öllu jöfnu gildi sínu í 10 ár.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Sjá meira