Vilja að ellefu ára stelpur fái að æfa inni eins og strákarnir sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 29. september 2015 15:22 Foreldrarnir eru ósáttir við að strákarnir fái að æfa inni en ekki stúlkurnar. Íþróttastjóri segist ætla að finna lausn á málinu. vísir/gva
Foreldrar stúlkna í fimmta flokki í knattspyrnu hjá Víkingi Reykjavík eru ósáttir við að einungis drengjum í sama flokki hafi verið úthlutað innivelli til æfinga, en stúlkunum ekki. Auglýst hafði verið að hver flokkur fengi einn dag í viku í Egilshöll í vetur, en nú fyrir skömmu var foreldrum stúlknanna tilkynnt að allar þeirra æfingar færu fram á útivelli Víkings. Nokkrir foreldrar hafa lagt inn kvörtun til þjálfara stúlknanna, sem vísað hefur erindinu til Ólafs Ólafssonar, íþróttastjóra Víkings. Hann segir að vel komi til greina að skoða málið. „Það stóð til að við fengjum heilan völl í miðri viku fyrir 5. flokk karla og kvenna. Reykjavíkurborg úthlutaði okkur hins vegar bara hálfum velli og þá urðum við að velja annan flokkinn,“ segir Ólafur í samtali við Vísi. Þegar hafði verið ákveðið að stúlkur í 3. og 4. flokki fengju sinn tíma á innivelli, en strákarnir ekki, og því hefði þetta verið niðurstaðan. „Þetta er í raun þannig að 3. og 4. flokkur kvenna fékk tíma á móti 5. flokki karla, en strákarnir í fyrrnefndum flokkum ekki. Þannig að það er ekkert kynjamisrétti í gangi hérna, enda kvennastarf Víkings mjög virkt.“ Foreldri sem Vísir ræddi við í dag sagðist hafa komið með þá uppástungu að tímunum yrði skipt þannig að hver flokkur fengi innitíma aðra hverja viku. Ólafur segist vel tilbúinn til að skoða það, sem og aðrar lausnir. „Ef það er þeirra ósk. Vandamálið er bara að það flækir hlutina því fólk kannski man ekki hvort það sé þessi vika eða hin. Það væri frekar að hafa einhverja öðruvísi skiptingu á því, en það er minnsta mál að skoða það, eftir því hver vilji fólksins eða þjálfaranna er.“
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira