Lífið

Kristín litla systir skemmtilegust

Björn Helgi selur límonaði fyrir utan heimili sitt í London
Björn Helgi selur límonaði fyrir utan heimili sitt í London
Björn Helgi, oftast kallaður Bjössi, segist hlakka til sumarsins.

Hann býr í London, en ætlar að koma til Íslands að heimsækja vini sína og fjölskyldu í sumar.

„Ég ætla að fara á fótboltaæfingar á Íslandi með Bjarka vini mínum. Svo æfi ég líka alltaf tennis í London með bestu vinum mínum, Benjamin og Sebastian.“

Aðspurður hvað honum finnist skemmtilegast að gera er hann fljótur til svars: „Fótbolti. Svo finnst mér líka skemmtilegt að leika við litlu systur mína, Kristínu.“

Bjössi hlakkar til að komast í sumarfrí, en hvað finnst honum skemmtilegast í skólanum?

„Leikvöllurinn í skólanum er mjög skemmtilegur. En mér finnst líka skemmtilegt að lesa og æfa stafina.“

Að lokum bætir hann við að uppáhaldsmaturinn sinn sé hamborgari og spagettí.

Birni Helga finnst skemmtilegt að lesa og æfa stafina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.