Þúsundir kvenna fögnuðu Snærós Sindradóttir skrifar 20. júní 2015 10:45 Stúlknakórar og kvennakórar sungu á milli ræðuhalda á Austurvelli í gær. Athöfnin var öll hin hátíðlegasta. Vísir/Stefán
Öllu var til tjaldað á Austurvelli í gær þegar hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna var fagnað. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hélt ræðu af svölum Alþingishússins. Hún fór stuttlega yfir sögu kvenna við stjórn landsins og hvað áunnist hefur í jafnréttisbaráttunni. Þá sagði hún að enn væri langt í land til að fullkomnu jafnrétti væri náð. Samskipti kynjanna væru oft lituð af andlegu og líkamlegu ofbeldi og ofsóknir á netinu væru orðnar daglegt brauð. „Og við sem höfum stært okkur af því að vera friðsöm þjóð,“ klykkti Vigdís svo út með. Mörg þúsund manns, þá aðallega konur, voru samankomin til að hlýða á dagskrána á Austurvelli og sjá afhjúpun á styttu af Ingibjörgu H. Bjarnason sem reist hefur verið fyrir utan skála Alþingis. Þó nokkur fjöldi var jafnframt kominn á Austurvöll til að mótmæla launamun kynjanna og ofbeldi gegn konum. Hópurinn var merktur gulu og appelsínugulu til aðgreiningar. Þau sem merkt voru appelsínugulu vildu með litnum vekja athygli á því að þau hefðu orðið fyrir kynferðisofbeldi. Mótmælin koma í kjölfarið á Beauty Tips-byltingunni svokölluðu, þar sem margar konur stigu fram og lýstu ofbeldi sem þær hefðu orðið fyrir. Mótmælin voru þögul.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Sjá meira