Grunuð um að beita börn sín ofbeldi viktoría hermannsdóttir skrifar 20. júní 2015 11:00 Börnin hafa verið vistuð utan heimilis frá því í apríl og verða það í allavega fjóra mánuði í viðbót á meðan rannsókn málsins stendur. NORDICPHOTOS/GETTY
Á fimmtudag sneri Hæstiréttur Íslands við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem því var hafnað að þrjú börn yrðu vistuð utan heimilis móður þeirra í sex mánuði. Móðirin er grunuð um að hafa beitt börnin ofbeldi en þau eru á aldrinum eins til sjö ára en alls á hún fimm börn, þau eldri eru 11 og 12 ára. Þar kemur einnig fram að það sé mat starfsmanna nefndarinnar að ekki leiki vafi á því að móðir hafi beitt öll fimm börnin grófu andlegu og líkamlegu ofbeldi. Þau hafi búið við óviðunandi aðstæður í hennar umsjá alla tíð og telja þau að jafnvel sé um lífshættulegt ofbeldi að ræða samkvæmt úrskurðinum. Afleiðingar ofbeldisins á börnin eru meðal annars taldar vera að eitt barnið hafi sýnt mjög ofbeldisfulla hegðun í skóla, það hafi ráðist á aðstoðarskólastjóra og veitt honum áverka þar sem þurfti að sauma fimm spor í höfuð hans auk þess að hafa ráðist á kennara. Það vekur athygli að í úrskurðinum kemur fram að afskipti hafi verið af fjölskyldunni frá árinu 2005 en ekki hafi verið farið fram á að börnin verði vistuð utan heimilis fyrr en nú. Halldóra Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndarnefndar Reykjavíkur, segir að yfirleitt sé allt reynt áður en til þess úrræðis sé gripið að vista börn utan heimilis. Í úrskurði málsins kemur fram að ýmislegt hafi verið reynt til þess að hjálpa fjölskyldunni og að gerðar hafi verið átta meðferðaráætlanir sem ekki hafi borið árangur. „Lögin gera ráð fyrir því og barnasáttmálinn líka að það sé töluvert mikið lagt á sig til þess að halda fjölskyldum saman. Síðan er alltaf spurning hvenær er komið að þessum mörkum, hvenær þykir fólki nóg komið,“ segir Halldóra. Ef foreldri neitar að leyfa vistun barns utan heimilis þá er úrskurði Barnaverndar áfrýjað til héraðsdóms líkt og í þessu tilfelli. Barnaverndarnefnd áfrýjaði svo dómi héraðsdóms til Hæstaréttar sem sneri dómnum við. „Það var svona prinsippmál að fá þá leiðbeiningar Hæstaréttar um það hvenær er nóg komið í lífi barna,“ segir hún um ákvörðun nefndarinnar um að áfrýja dómnum. Aðspurð hvort hún telji Barnavernd hafa brugðist börnunum í þessu máli með því að láta ekki vista þau utan heimilis fyrr segir Halldóra það hafa verið metið svo að þetta úrræði hefði verið tímabært á þessu stigi málsins þar sem allt annað hafi verið fullreynt. „Það hefur verið umræða um hvar mörkin eru, hvað máttu leyfa þér gagnvart barninu, hvernig beitirðu aga og allt það. En ofbeldi getur aldrei verið viðurkennt sem agatæki gagnvart barni.“ Samkvæmt úrskurði héraðsdóms í málinu lýsti eitt barnið, sem er ellefu ára gamalt, miklu ofbeldi sem móðir þeirra á að hafa beitt systkinin. Fyrsta tilkynning til Barnaverndar barst árið 2005 en síðan hafa um 70 tilkynningar borist og ítrekað verið höfð afskipti af heimilinu. Konan neitar að hafa beitt börnin ofbeldi en segir að barnsfaðir hennar hafi beitt hana ofbeldi og börnin orðið vitni að því. Hann hafi ofsótt hana um árabil og meðal annars ráðist að henni með hníf í apríl síðastliðnum en hún hafi þá lagt fram beiðni um nálgunarbann. Telur hún að rekja megi flestar tilkynningar til Barnaverndarnefndar til hans.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira