Erfitt líf „rykkonunnar“: Lést úr magakrabbameini Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. ágúst 2015 10:58 Myndin fræga af Marcy Borders. vísir/afp
Marcy Borders, betur þekkt sem „rykkonan“ lést á mánudag eftir árslanga baráttu við magakrabbamein. Mynd af Borders sem birtist þann 11. september 2001 varð ein frægasta ljósmyndin af vettvangi hryðjuverkaárasanna í New York þegar tveimur flugvélum var flogið á tvíburaturnana svokölluðu. Borders var 28 ára gömul og nýbyrjuð að vinna hjá Bank of America í norðurturninum þegar árásirnar áttu sér stað. Skrifstofa hennar var á 81. hæð en þegar vélin lenti á turninum hljóp hún út. Þar var mikið öngþveiti, mikið ryk og sært fólk hvert sem litið var.Varð háð krakki og þjáðist af þunglyndi Ljósmyndin af Borders var tekin þegar ókunnugur maður ýtti henni út úr anddyri annarrar byggingar skömmu áður en að norðurturninn hrundi. „Hundruð manna voru að reyna að komast út. [...] Ég var viss um að ég myndi deyja. Ég er svo glöð að mér tókst að komast niður. Þar voru margir særðir og þetta var einhvern veginn of mikið. [...] Ég skildi ekki hvað var að gerast og hugsaði með mér „Guð, ég dey hvort sem er,““ sagði Borders eitt sinn í viðtali. Borders missti smám saman tökin á lífi sínu í kjölfar 11. september. Hún þjáðist af alvarlegu þunglyndi og varð háð krakki. Hún var atvinnulaus í 10 ár og var viss um að Osama bin Laden væri að skipuleggja fleiri árásir.Ein áhrifaríkasta ljósmyndin Í apríl 2011 missti Borders forræðið yfir börnunum sínum tveimur og ákvað þá að fara í meðferð. Í fyrra greindist hún svo með krabbamein og greindi frá því hún hefði farið í lyfjamerð vegna meinsins. Þá átti Borders að fara í aðgerð vegna krabbameinsins í desember. Ljósmyndin af Borders var valin ein af 25 áhrifaríkustu ljósmyndum allra tíma af tímaritinu Time en Borders velti því fyrir sér hvort að eiturefnin sem hún andaði að sér þann 11. september 2001 hefðu valdið því að hún fékk krabbamein.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira