Mansal er vandamál í útgerð á Taílandi Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 16. júní 2015 07:00 Stjórnvöld á Taílandi vinna að því að uppræta mansal í fiskiðnaði. vísir/epa
Mansal hefur tíðkast í fiskiðnaði í Taílandi um árabil. Human Rights Watch og Anti-Slavery samtökin hafa greint frá slæmum aðstæðum starfsmanna á smábátum í Taílandi. Dæmi eru um að verkamenn frá Búrma gangi kaupum og sölum á milli skipstjóra. ORA kaupir túnfisk frá Taílandi en Leifur Þórsson, framkvæmdastjóri ORA, leggur mikla áherslu á að starfsfólk sinna viðskiptavina búi við viðunandi starfsskilyrði.Leifur Þórsson„Það er líka þannig að allir sem stunda verslun við Evrópumarkað þurfa að vera með tilheyrandi starfsskilyrði og vottun. Og ef eitthvað er að er gerð úttekt á því að viðkomandi standist allar tilsettar kröfur.“ Fyrr á árinu setti Evrópusambandið þau skilyrði að taílensk stjórnvöld ynnu markvisst gegn mansali í starfsgreininni og hótaði að setja innflutningsbann á fisk til ESB ef engar bætur yrðu á. Taíland er þriðja stærsta fiskútflutningsþjóð í heimi. Í fyrra greindi The Guardian frá því að alþjóðlega fiskveiðifyrirtækið CP Foods frá Taílandi verslaði með afurðir sem veiddar hefðu verið af fórnarlömbum mansals. „Við hjá ORA höfum síðustu áratugi keypt nær allan túnfisk sem við höfum selt hér á landi af taílenska framleiðandanum Thai Union. Allur túnfiskur sem seldur hefur verið í nafni ORA á smásölumarkaði hefur komið frá þeim framleiðanda.“ Í tilfelli Thai Union höfðu viðskipti við mansalsmenn ekki átt sér stað en forsvarsmenn Thai Union hafa harðlega fordæmt ólöglega starfsemi af þeim toga. Leifur leggur áherslu á viðunandi viðskiptavini. „Það skiptir okkur gífurlega miklu máli að þeir sem við stundum verslun við séu ábyrgir framleiðendur.“
Mest lesið Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Reiðin magnast í Venesúela Erlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Með kylfur og mikið magn vímuefna Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent Fleiri fréttir Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Sjá meira