Skemmdir á bílum daglegt brauð: "Þessi heiði er alveg skelfileg“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 10. september 2014 19:15 Harpa hefur slæma reynslu af akstri um veginn. Hún segir ekkert hafa verið gert fyrir hann í mörg ár. Mynd/Harpa „
Það hefur ekki verið hirt um þennan veg í svo mörg, mörg ár,“ segir Harpa Matthíasdóttir, íbúi á Fossi við Arnarfjörð en mynd sem hún setti inn á netið af þjóðvegi að heimili hennar hefur vakið athygli. Þar spyr hún hvort það sé sanngjarnt að íbúar á Vestfjörðum sitji uppi með vegi af þessu tagi þegar þau borga sömu skatta og bifreiðagjöld og allir aðrir. Myndin sýnir að vegurinn er markaður djúpum holum sem gera akstur um hann erfiðan. „Það er vont að keyra svona veg, maður lærir með árunum að sveigja framhjá steinum og holum en það gerir ekki fólk sem ekki er vant.“ Harpa segir veginn aðeins dæmi um marga vegi á Vestfjörðum sem Vegagerðin hefur leyft að sitja á hakanum undanfarin ár. Harpa segist oft lenda í því að bíll hennar skemmist þegar hún keyrir þennan tiltekna veg. „Þessi heiði er alveg skelfileg.“ En vegurinn liggur upp á Trostansfjarðarheiði.Skemmdir á dempurum eru hvað algengastar en einnig veit hún til þess að sprungið hafi á dekkjum hjá fólki sem um hann ekur auk þess sem bílar hafa oltið vegna þess að erfitt er fyrir bíla að mætast. „Það var einn bíll í sumar sem sprengdi tvö dekk. Þeir þurftu að bíða í óratíma,“ útskýrir Harpa en mennirnir í bílnum voru ferðamenn sem óvanir eru vegum af þessu tagi. „Ég er búin að þurfa að laga demparana að aftan og samt keyri ég varlega. Þetta stútar alveg dempurum. Síðast þegar ég fór þá mölvaðist spyrnugúmmí alveg í heilu lagi úr. Ég fékk svo rosalegt högg og það skrölti í öllu hjá mér. Ég hélt að ég væri búin að stórskemma eitthvað.“ Hún segir að ef ökumaður hyggist ekki skemma bílinn sinn þá sé nauðsynlegt að aka veginn á aðeins 30-40 kílómetra hraða.Myndinni deildi Harpa á Facebook og hefur hún fengið mikil viðbrögð. Harpa telur það eiga rætur sínar að rekja til þess að fólk sé orðið langþreytt á aðstæðunum.Mynd/HarpaEnginn vilji til þess að bæta veginn á svæðinu „Mér blöskrar þetta svo af því að svo hef ég líka búið í bænum og þar er allt til alls. Það eru meira og minna malbikaðir vegir út um allt land. En eins og núna í sumar hefur Vegagerðin ekki einu sinni heflað veginn. Hann var alltaf heflaður einu sinni, nú eru þeir hættir því líka.“ Hún segir sumstaðar hjólför vera komin svo langt frá miðju vegarins að þau séu nánast út fyrir veginn. „Það er alveg svakalega hættulegt. Sérstaklega fyrir fólk sem er ekki vant þessu.“ „Vegagerðin segir að það sé ekki til nægjanlegt fjármagn. Málið er að það getur bara ekki verið rétt því að það er til nóg fjármagn til að setja í vegi annars staðar. Það er bara enginn vilji fyrir því að bæta veginn hér á þessu svæði og hefur ekki verið í 20 ár.“ Eins og Fréttablaðið greindi frá í dag var fallið frá þeim milljarði sem leggja átti í viðhald vega á landinu en í stað þess var lagt 850 milljón króna viðbótarframlag í nýframkvæmdir. Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, hefur áhyggjur af viðhaldi vega á landinu öllu. „Það er sérstaklega þetta viðhaldsleysi sem er farið að koma niður á endingu veganna sem við lítum alvarlegum augum. Það getur að auki komið niður á öryggi vegfarenda,“ sagði hann í samtali við Fréttablaðið. Hann segist fá margar kvartanir um skemmdir á bílum vegna þess að vegir eru ekki nógu góðir.
Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Sjá meira