Fótbolti

Sáttur með fá gul spjöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
fá gul Ari Freyr Skúlason var ekki sáttur við sitt spjald. Fréttablaðið/Getty
fá gul Ari Freyr Skúlason var ekki sáttur við sitt spjald. Fréttablaðið/Getty
Lars Lagerbäck, annar þjálfara íslenska landsliðsins, er mjög ánægður með að leikmenn íslenska liðsins hafa ekki fengið mörg spjöld í fyrstu þremur leikjum íslenska liðsins í undankeppni Evrópumótsins.

Íslenska liðið er á toppi síns riðils en liðið hefur náð í 9 stig af 9 mögulegum og er auk þess með markatöluna 8-0. Íslensku strákarnir hafa verið skynsamir í sínum leik því þrátt fyrir mikla grimmd og harða baráttu eru gulu spjöldin bara tvö á fyrstu 270 mínútunum.

Þetta er mikil framför frá síðustu undankeppni þegar íslensku leikmennirnir fengu átta gul spjöld og eitt rautt spjald í fyrstu þremur leikjunum.

„Það er virkilega gott líka hversu fá gul spjöld við höfum fengið,“ sagði Lars Lagerbäck á blaðamannafundinum í gær. Gylfi Þór Sigurðsson og Ari Freyr Skúlason eru þeir einu sem hafa náð sér í gult spjald í sigurleikjunum á móti Tyrklandi, Lettlandi og Hollandi. Þeir Gylfi og Ari fara í leikbann fái þeir annað spjald en enginn annar leikmaður íslenska liðsins er á hættusvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×