Fótbolti

Jurgen Klinsmann óskar eftir stuðningi

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jurgen Klinsmann var í flottri peysu i leik Bandaríkjanna og Portúgal á dögunum.
Jurgen Klinsmann var í flottri peysu i leik Bandaríkjanna og Portúgal á dögunum. Vísir/Getty
Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, vonast til þess að öll þjóðin fái að horfa á leikinn þrátt fyrir að leikurinn fari víða fram á vinnutíma í Bandaríkjunum.

Bandaríkin mæta Þýskalandi í dag í lokaleik G-riðilsins og eiga óvænt góða möguleika á að komast í 16-liða úrslitin. Dugar jafntefli báðum liðum til þess að komast áfram en þjálfarar liðanna segjast ætla að sigra leikinn.

Fótbolti hefur aldrei náð að slá í gegn í Bandaríkjunum fyrr en nú og horfðu fleiri á leik Bandaríkjanna og Portúgal en NBA-úrslitaleikinn í ár. Klinsmann vill halda slíkum vinsældum og kvittaði undir leyfi í þágu þjóðarinnar þar sem hann skoraði á alla að hvetja liðið. Skoraði hann á yfirmenn vinnustaða að veita leyfi til þess að styðja liðið og að landsmenn myndu mæta í landsliðstreyjunum sínum.

Leyfisbréf Klinsmann má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×