Fótbolti

Messi er frá Júpíter

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Stephen Keshi skilur ekki hvaðan Messi fær alla þessa hæfileika.
Stephen Keshi skilur ekki hvaðan Messi fær alla þessa hæfileika. Vísir/Getty
Stephen Keshi, landsliðsþjálfari Nígeríu, hrósaði Lionel Messi eftir leik Argentínu og Nígeríu í gærkvöldi. Keshi taldi að Messi sem skoraði í tveimur leikjum væri ekki frá sömu plánetu og aðrir leikmenn inn á vellinum.

Messi kom Argentínu tvisvar yfir í fyrri hálfleik, þar af kom seinna markið úr glæsilegri aukaspyrnu áður en hann var tekinn af velli.

„Hann er leikmaður í öðrum gæðaflokki. Hann hefur guðsgjöf sem ekki er hægt að taka frá honum. Það eru til heimsklassa leikmenn en hann er einfaldlega frá Júpíter í þeim samanburði,“ sagði Keshi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×