Stefnumótasíða fyrir hassreykingamenn Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 30. september 2014 20:00
Ryan Moxon er 28 ára karlmaður sem stofnaði stefnumótasíðuna 420singles.net. Síðan er sérstök að því leiti að hún er eingöngu fyrir þá sem hafa unun að því að reykja hass.Ryan er í viðtali við tímaritið Cosmopolitan en hann lýsir síðunni sem öðruvísi stefnumótasíðu fyrir fólk sem elskar marijúana en 420 vísar í mikilvæga tölu í kannabiskúltúrnum. Rúmlega 29 þúsund meðlimir eru á síðunni og margir greiða tíu dollara gjald fyrir tveggja mánaða lúxusáskrift. En af hverju stofnaði hann síðuna? „Guð, það var ýmislegt sem orsakaði það. Ég var búinn að leika mér með Wordpress í nokkur ár og einn daginn sat ég heima, ég átti engan mat, var staurblankur, með enga háskólamenntun. Ég hugsaði: gaur, ég veit hvernig á að búa til síður, ég ætti bara að gera það. Og síðan varð mér ljóst að ég væri einhleypur og byrjaði að leita að 420-stefnumótasíðum en fann enga almennilega og þannig sá ég þetta tækifæri,“ segir Ryan. Hann segir að honum hafi verið hafnað á öðrum stöðum, til dæmis Tinder og Match, út af því að hann reykir gras. „Ég setti á síðuna mína að ég reykti og síðunni minni var eytt. Það var fyrir mörgum árum. Og ég veit að það hefur gerst fyrir fullt af öðru fólki líka,“ segir Ryan. En hefur hann prófað síðuna sína sjálfur? „Ég reyni, ég geri það virkilega. En ég hef ekki verið heppinn hingað til. Ég hef stundum næstum því orðið heppinn. Það var stelpa sem mig langaði á stefnumót með en hún býr í fjörutíu mílna fjarlægð og bíllinn minn er svo mikill skrjóður,“ segir Ryan.Hér er viðtalið við hann í heild sinni.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Krummi kveður pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira