Fótbolti

Higuain skaut Argentínu í undanúrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Argentínumenn fagna marki Higuain.
Argentínumenn fagna marki Higuain. Vísir/Getty
Argentína er komið í undanúrslit eftir að liðið lagði Belgíu að velli í dag, 1-0. Gonzalo Higuain skoraði eina mark leiksins eftir átta mínútur.

Það voru ekki liðnar nema átta mínútur þegar fyrsta markið leit dagsins ljós. Boltinn hrökk til Gonzalo Higuaín á vítateigslínunni og þrumaði boltanum í fjærhornið. Frábærlega klárað og hann valdi sér aldeilis leikinn til að skora sitt fyrsta mark á mótinu.

Ekki var mikið fjör eftir þetta og fyrri hálfleikurinn var afspyrnu leiðinlegur. Kevin Mirallas, vængmaður Belgíu, fékk ágætis færi en skallaði boltann framhjá.

Angel Di Maria fór af velli eftir rúman hálftíma, en ekki er vitað hversu lengi hann verður frá. Reiðarslag fyrir Argentínumenn.  Staðan var 1-0 í hálfleik og Argentínu menn voru með töggl og haldir á leiknum.

Markaskorarinn fékk dauðafæri svo eftir tíu mínútur í síðari hálfleik, en hann þrumaði boltanum í slánna eftir frábæran sprett.

Eftir klukkutímaleik gerðu Belgarnir tvöfalda breytingu. Kevin Mirallas og Divock Origi fóru af velli og þeir Romelu Lukaku og Dries Mertens komu inná. Með þessari skiptingu kom smá kraftur í leik Belgana og Fellaini fékk ágætis skallafæri stuttu síðar.

Eden Hazard var hvergi sjáanlegur, en ætluðu Belgar sér í undanúrslitin þurftu þeir að fá meira framlag frá honum. Honum var síðan skipt af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka og Nacer Chadli var sendur á vettvang í hans stað.

Argentínumenn reyndu allt sem þeir gátu til að drepa leikinn og byrjuðu að tefja sem fór í taugarnar á Belgunum. Lionel Messi fékk svo dauðafæri til að gera út um leikinn í uppbótartíma, en Curtois varði.

Belgarnir brunuðu í sókn og þar fékk Lukaku ágætis færi, en náði ekki að koma boltanum á markið né koma boltanum almennilega fyrir markið.

Lokatölur urðu svo 1-0 og Argentínumenn gátu fagnað í leikslok, enda komnir í undanúrslitin. Enn og aftur vinnur Suður-Ameríku þjóðin með minnsta mun, en allir sigurleikir Argentínu á mótinu hafa endað með minnsta mun.

Argentína gerði það sem þurfti í þessum leik. Lykilmenn Belga náðu sér ekki á strik og náðu Belgarnir ekki að skapa sér nein opin marktækifæri fyrir utan skallana hjá Mirallas og Fellaini.

Það ræðst síðar í kvöld hverjum Argentína mætir í undanúrslitunum, en það er annað hvort Holland eða Kosta Ríka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×