Tíu farþegar ferjunnar lifðu slysið ekki af Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. desember 2014 22:45 Slökkvibátar reyna að ná stjórn á eldinum meðan þyrla bjargar farþegum. vísir/ap
Tala látinna eftir að eldur kom upp á dekki ferju Norman-Atlantic á Jónahafi nærri albönsku strandlengjunni í fyrradag var í kvöld komin upp í tíu. Tæplega fimm hundruð farþegar, helmingur frá Grikklandi en einnig fjöldi frá Ítalíu, Þýskalandi og Albaníu auk fleiri landa, voru um borð þegar eldurinn kom upp en björgunaraðgerðir tóku tæpar fjörutíu klukkustundir. Skipstjóra skipsins var bjargað síðustum frá borði. Eldurinn kviknaði á sunnudagsmorgun og hófust björgunaraðgerðir skömmu eftir að neyðarkall barst. Aðstæður voru erfiðar en vindhraði á svæðinu var um þrjátíu metrar á sekúndu. Björgunarmenn á þyrlum unnu að því í alla fyrrinótt að koma fólki frá borði en reykur frá eldinum gerði aðgerðir ekki auðveldari. Enn logaði í ferjunni í gær þrátt fyrir aðgerðir slökkvibáta en hún var á leið frá Patras í Grikklandi til Ancona á Ítalíu. Ítalska landhelgisgæslan vinnur nú að því að koma skipinu í höfn. Flestir farþeganna voru fluttir yfir í nærstödd skip en aðrir, sem höfðu ofkælst eða fengið vott af reykeitrun, voru fluttir beinustu leið á sjúkrahúsið í Brindisi. Ekki er ljóst hvað olli því að eldurinn braust út. Ítalskur saksóknari hefur gefið út að rannsókn sé hafin á því hvort eldsvoðann megi rekja til vanrækslu skipstjóra eða starfsmanna ferjunnar.
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Náðar spilltan fógeta Erlent Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Innlent „Hann er að leika sér að eldinum!“ Erlent Fleiri fréttir „Hann er að leika sér að eldinum!“ Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Náðar spilltan fógeta Telja vanrækslu hafa valdið mannskæðu þyrluslysi í Finnlandi Fjögur börn í hópi þeirra mest slösuðu „Bara sjokk hvað maður var nálægt þessu“ Einn í haldi eftir að ekið var á fólk í Liverpool Deila enn um „stóra fallega“ frumvarpið Hnekkti dómi fyrrverandi kanslara fyrir meinsæri Hjónaerjur í opinberri heimsókn Macrons Mestu árásirnar hingað til, aftur Kim reiður yfir misheppnaðri sjósetningu Útskrifuð af geðdeild daginn fyrir stunguárásina í Hamborg Konur og karlar fái sortuæxli á ólíkum stöðum Mannfall þegar skólabygging var sprengd Segir Pútín „genginn af göflunum“ og íhugar refsiaðgerðir Frestar fimmtíu prósenta tollum á Evrópusambandið Ætla að hernema stærstan hluta Gasa og smala íbúum á afmörkuð „öryggissvæði“ Fundu lík fimm skíðamanna nærri Zermatt Umfangsmestu loftárásir frá upphafi stríðs Níu af tíu börnum tveggja lækna létust í árásum Ísraela Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Tólf særðir eftir hnífstunguárás í Hamborg Vilja breyta mannréttindasáttmála til að auðvelda sér að sparka innflytjendum úr landi Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Ákærður fyrir að myrða sendiráðsstarfsfólk Ísraels Netanjahú segir Starmer, Macron og Carney draga taum Hamas Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Sjá meira