Hefur Gunnleifur leikið sinn síðasta landsleik? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2014 07:30 Endastöð? Gunnleifur Gunnleifsson á æfingu landsliðsins. Fréttablaðið/vilhem
Gunnleifur Gunnleifsson er ekki lengur í hópi þriggja bestu markvarða landsins því Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson völdu þennan 39 ára markvörð Breiðabliks ekki í landsliðshóp sinn fyrir leiki gegn Belgíu og Tékklandi í næstu viku. Heimir og Lars völdu frekar Ingvar Jónsson, markvörð Stjörnunnar, og Ögmund Kristinsson, markvörð Randers í Danmörku. Ingvar hefur verið í hópnum í síðustu leikjum en á enn eftir að spila landsleik. Ögmundur kom inn á á móti Eistlandi í júní en hafði ekki verið í hópnum síðan. Gunnleifur Gunnleifsson hefur verið fastamaður í hópnum síðan Lars Lagerbäck tók við liðinu í ársbyrjun 2012 og alls verið í hópnum í 25 af 27 leikjum. Gunnleifur hefur hins vegar ekki tekið þátt í nema fimm þeirra og hann hefur ekki spilað keppnisleik frá árinu 2010. Gunnleifur er fimmti leikreyndasti markvörður karlalandsliðsins frá upphafi með 26 leiki en Hannes Þór Halldórsson, aðalmarkvörður íslenska liðsins, er kominn með 24 landsleiki og er líklegur til að taka fljótlega fimmta sætið af þeim Gunnleifi og Friðriki Friðrikssyni. „Við erum alls ekki ósáttir við Gunnleif. Hann bankar á og heldur þeim við efnið. Við sjáum svo hvað gerist í næsta verkefni,“ sagði Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara Íslands, í gær. Gunnleifur lék þrjá fyrstu landsleiki sína á árunum 2000 og 2001 en síðan var hann ekki með í landsliðinu fyrr en árið 2008 þegar hann var á 33. aldursári. Gunnleifur var síðan aðalmarkvörður landsliðsins frá 2009 til 2010. Nú er hins vegar óvíst hvort hann verður aftur með en það styttist í fertugsafmælið hans þegar liðið mætir Kasökum í lok mars.
Fótbolti Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Sjá meira