Erlent

Messa á diski hjá bakaranum

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Á hverjum mánudagsmorgni geta íbúar í bænum Løsning á Jótlandi fengið guðsþjónustu sunnudagsins í bakaríinu Den Lille Bager. Það eru sjálfboðaliðar sem taka upp guðsþjónustuna, brenna hana á tíu diska og fara með þá í bakaríið.

Viðskiptavinir bakarans geta fengið diskana án endurgjalds. Samkvæmt frétt á vef Kristilega dagblaðsins renna diskarnir út.

Markmiðið er að ná til þeirra sem hika ef til vill við að sækja messu eða komast ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×