Viðbragðsher NATO fær höfuðstöðvar í A-Evrópu Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. september 2014 10:00 Leiðtogar NATO-ríkjanna horfðu til himins í gær. Nordicphotos/AFP
Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins samþykktu í gær að stofna nokkur þúsund manna viðbragðssveitir sem hafi höfuðstöðvar í Austur-Evrópu. Þessar sveitir verði hægt að senda með stuttum fyrirvara til átakasvæða fari svo að eitthvert aðildarríkjanna verði fyrir árás. „Með þessu eru send skýr skilaboð til allra sem gætu orðið líklegir til að gera árás: Þótt þið gerið ekki annað en að íhuga árás á eitt aðildarríkjanna, þá þurfið þið að fást við bandalagið allt,“ sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, á leiðtogafundinum í Wales í gær. Þessi skilaboð eru ekki síst ætluð Rússum, sem hafa leynt og ljóst stutt uppreisnarmenn í austanverðri Úkraínu í átökum sem kostað hafa meira en 2.500 manns lífið. Ekki hefur enn verið ákveðið hvar höfuðstöðvar viðbragðshersins verða, en Pólland, Rúmenía og Eystrasaltslöndin þrjú hafa lýst yfir áhuga á að hýsa þær. Tveggja daga fundarhöldum NATO í Wales lauk í gær, en ákveðið var að næsti leiðtogafundur yrði haldinn í Varsjá í Póllandi árið 2016. Sú staðsetning er einnig hugsuð sem skýr skilaboð til rússneskra stjórnvalda, sem jafnan hafa kvartað hástöfum undan nærveru NATO í nágrannaríkjum Rússlands. Leiðtogarnir hvöttu einnig til þess að framlög aðildarríkjanna til varnarmála yrðu tvö prósent af þjóðarframleiðslu. Einungis fjögur aðildarríkjanna standa undir þeirri kröfu nú, Bandaríkin, Bretland, Grikkland og Eistland. Pólverjar lýstu því yfir að þeir ætli sér að ná þessu markmiði árið 2016.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Sjá meira