Erlent

Forsætisráðherrann sagði af sér

Freyr Bjarnason skrifar
Forsætisráðherrann Manuel Valls hefur sagt upp störfum.
Forsætisráðherrann Manuel Valls hefur sagt upp störfum. Nordicphotos/AFP
François Hollande, forseti Frakklands, hefur leyst upp ríkisstjórn landsins eftir miklar deilur á þinginu um efnahagsmál.

Manuel Valls forsætisráðherra bauðst til að sósíalistaflokkur hans, sem hefur ráðið ríkjum, myndi segja af sér eftir gagnrýni frá fjármálaráðherranum Arnaud Montebourgh.

Hollande samþykkti afsögnina og óskaði eftir því að Valls myndaði nýja ríkisstjórn. Enginn efnahagsvöxtur hefur verið í Frakklandi á þessu ári, atvinnuleysi hefur verið í kringum tíu prósent og fylgi Hollandes hefur dalað.

Frakkland hefur verið undir þrýstingi frá Evrópusambandinu um að koma efnahagsmálum sínum í lag. Montebourgh lét í ljós efasemdir sínar um að niðurskurðurinn sem ESB hefur lagt til muni blása lífi í efnahaginn. Ummælin vöktu litla kátínu hjá meðlimum ríkisstjórnarflokksins sem sagði ráðherrann eiga að styðja við bakið á stjórninni en ekki tala gegn henni.

Loforð Hollandes um að lækka skatta og gera fyrirtækjum auðveldara fyrir að starfa í landinu hafa ekki orðið að veruleika, að stórum hluta vegna deilna á meðal sósíalista á þinginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×