Landeigendur fá frest til sátta um Jökulsárlón Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. júlí 2014 07:45 Búist er við yfir 200 þúsund ferðamönnum að Jökulsárlóni í sumar en aðstaðan er ekki boðleg, segir bæjarstjóri Hornafjarðar. Fréttablaðið/Valli „
Þarna eru að koma yfir 200 þúsund gestir á sumri og það er gjörsamlega ófullnægjandi aðstaða til að veita þessu fólki venjulega og almennilega þjónustu,“ segir Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, um deilur landeigenda og ferðaþjónustufyrirtækja við Jökulsárlón. Dómur féll í júní í máli sameignarfélags landeigenda á hendur meðeiganda þeirra í jörðinni Felli, Einari Birni Einarssyni, sem á fyrirtækið Jökulsárlón ehf. Sameignarfélagið vildi að samningi Einars frá árinu 2002 um landið við lónið yrði rift en því hafnaði héraðsdómur. Einar er ekki meðlimur sameignarfélagsins. Fleiri landeigendur hafa einnig sagt sig úr félaginu. Sveitarfélagið lét í samvinnu við landeigendur deiliskipuleggja þjónustulóð við lónið í landi Fells. Einar Björn hefur sent inn hugmyndir og óskað eftir framkvæmdaleyfi og sameignarfélagið hefur fyrir sitt leyti samið við fasteignafélag um að byggja þjónustuna á sömu lóð við lónið. „Við getum hvorugum veitt leyfi fyrr en samþykki allra liggur fyrir,“ segir Björn Ingi bæjarstjóri sem bendir á að allir landeigendurnir þurfi að samþykkja allar framkvæmdir á landinu. Þetta geri málið erfitt viðfangs en það sé aðkallandi og verði að leysa því aðstaðan sé ekki boðleg. „Þetta er okkur ekki til sóma,“ segir Björn. „Við ætlum að senda öllum landeigendum bréf og skora á þá að finna einhverja leið til að við getum farið í einhverja uppbyggingu á grunni þessa deiliskipulags. Við ætlum helst ekki að gefa þeim frest nema fram á haustið. Annar angi málsins er starfsemi samkeppnisaðila Jökulsárlóns ehf. Einar hefur nú krafist þess að sveitarfélagið Hornafjörður uppfylli „skyldur sínar og stöðvi starfsemi fyrirtækisins Ice Lagoon“ sem hóf rekstur ferðaþjónustu á sama stað og fyrirtæki Einars á austurbakka lónsins án þess að hafa leyfi fyrir sinni starfsemi. „Lögfræðingur okkar segir að okkur sé ekki stætt á öðru en að gera það,“ segir Björn sem kveður Ice Lagoon hafa verið sent bréf á miðvikudag þar sem gefinn sé tíu daga andmælafrestur.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira