Þúsundir á tjaldsvæðum norðaustanlands Sveinn Arnarsson skrifar 24. júlí 2014 07:00 Um þúsund manns gistu í Ásbyrgi í fyrrinótt og var tjaldsvæðið þétt skipað.
Tjaldsvæði í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og austanlands eru þéttsetin ferðamönnum. Ferðaþjónustuaðilar á svæðunum tala um sprengingu á þessum tíma og hafa á sumum svæðum ekki tekið við eins miklum fjölda fólks í yfir áratug. Fréttablaðið fór á stúfana og heyrði í umsjónarmönnum tjaldsvæða frá Eyjafirði og allt austur á Egilsstaði. Þeir höfðu allir sömu söguna að segja. Veðurblíðan sem nú ríkir á norðausturhorninu hefur haft það í för með sér að tjaldsvæðin eru mjög mikið notuð. Samtals gistu rúmlega tíu þúsund á tjaldsvæðunum í fyrrinótt sem verður að teljast nokkuð gott. Í Vaglaskógi var tjaldað nokkuð þétt og töldu umsjónarmenn um 600 gesti hafa gist þar í fyrrinótt. Voru umsjónarmenn sammála um að þessi fjöldi hefði ekki sést í skóginum í háa herrans tíð. Um þúsund manns voru í Ásbyrgi þegar fréttamaður náði tali af umsjónarmönnum þar í þjóðgarðinum. Fregnir hafa borist af því að ferðamenn hafi þurft frá að hverfa vegna þess að ekki hafi verið hægt að finna þeim stæði á tjaldsvæðinu. Um fimmtán hundruð manns voru til að mynda á tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar í Hrafnagili. Veðrið hefur verið mjög gott á þessum slóðum síðustu daga og flykkjast ferðamenn norður í leit að sumrinu. - sa
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira