Vilja veitingastað við samræktunarstöð Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 22. júlí 2014 12:00 Hérna eru þau Ragnheiður, Ragnar Ingi, Soffía og Svanhvít Lilja að huga að plöntunum.
Ragnheiður Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra fyrirtækisins Svinna, vinnur að því ásamt nokkrum líffræðinemendum að koma á fót fyrirtæki sem mun reka samræktunarstöð þar sem rækta á grænmeti, ávexti, kryddjurtir og tilapíu sem er vinsæll eldisfiskur. Þá stendur og til að reisa veitingastað við samræktunarstöðina þar sem afurðirnar verða reiddar fram. Einnig er gert ráð fyrir að gestir og gangandi fái að taka þátt í ræktuninni. Verður það jafnvel stílað nokkuð inn á ferðamenn.Tilapía Þessi fiskur er stundum kallaður beitarfiskur en hann er á meðal vinsælustu fiska hjá neytendum í Bandaríkjunum og víðar.Nú þegar hefur Svinna reist samræktunarstöð þar sem tilapían svamlar í kerum og losar köfnunarefni í vatnið sem síðan vökvar og nærir plönturnar. „Þetta gengur svo vel að við erum að huga að því að stofna fyrirtæki í kringum þetta,“ segir Ragnheiður. Ragnar Ingi Danner og Soffía K. Magnúsdóttir tileinka þessu verkefni krafta sína í meistaranámi sínu í líffræði við Háskóla Íslands og njóta einnig liðveislu Svanhvítar Lilju Viðarsdóttur sem stundar nám við Landbúnaðarháskólann. Auk þess að þróa ný búnaðarstörf tekur Ragnheiður einnig þátt í vinnu sem snýr að gömlum búskaparháttum því nú er hún við viðhaldsstörf á bænum Felli í Mýrdal en hann var reistur árið 1901 og var lengi í eigu langafa hennar, Hallgríms Brynjólfssonar.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina Erlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira