Óttast að lítið verði úr tillögum um bætta póstverslun Brjánn Jónasson skrifar 13. mars 2014 06:30 Aukið frelsi í póstsendingum gæti haft áhrif á verslun á Íslandi. Fréttablaðið/Arnþór „
Ég varð fyrir vonbrigðum þegar ég sá þessi svör, enda hélt ég að þetta mál nyti velvildar,“ segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, um svör fjármálaráðherra við fyrirspurn Marðar á Alþingi um póstverslun.Mörður ÁrnasonMörður spurði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra um ráðstafanir fjármálaráðuneytisins í framhaldi af tillögum starfshóps um póstverslun. Hópurinn skilaði skýrslu sinni í desember í fyrra. Meðal þess sem starfshópurinn lagði til var að aðflutningsgjöld verði felld niður af póstsendingum að verðmæti 2.000 króna eða undir. Í svörum fjármálaráðherra kemur fram að vel komi til greina að innleiða slíka reglu, enda væri af því talsvert hagræði fyrir neytendur og þá sem höndli með sendingar. Ráðherra tekur ekki jafn vel í aðrar tillögur hópsins, sem snéru flestar að breytingum til að einfalda póstverslun. Vísað er til þess að hafa þurfi samráð við tollstjóra og ríkisskattstjóra áður en ákveðið sé að gera breytingar á kerfinu. „Ég óttast að það verði ekki mikið gert með vinnu starfshópsins,“ segir Mörður. Hann segir það vonbrigði. „Menn hafa talað um það bæði í stjórnmálum og viðskiptalífinu að það þurfi einfaldara Ísland, skera á bönd reglugerða og kerfis til að auka viðskipti og samskipti bæði innanlands og utan í nafni frjálsrar verslunar.“
Mest lesið Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn fer ekki saman hljóð og mynd Erlent Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Erlent Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Innlent Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Innlent Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Innlent Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Innlent Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Innlent Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Veður Fleiri fréttir Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Sprengja í umsóknum um au-pair Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Verðbólga, biskupsmálið og utanríkismál Breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar auglýstar Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Pétur Markan bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum Sameining hreppanna tveggja samþykkt Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Sjá meira