Fjögur kíló af kókaíni í bíl 91 árs kardinála Kjartan Atli Kjartansson skrifar 17. september 2014 10:06 Hér er Mejia til hægri, ásamt Jóhannesi Páli Páfa. Myndin var tekin árið 2003. Vísir/AFP
Fjögur kíló af kókaíni og tvö hundruð grömm af kannabisefnum fundust í bíl í eigu 91 árs gamls kardinála Vatíkansins. Tveir menn voru handteknir eftir að hafa reynt að smygla efnunum til Frakklands. Eigandi bílsins heitir Jorge Maria Mejia og var áður bókavörður Vatíkansins. Hann er í miklum metum innan Vatíkansins; á meðfylgjandi mynd má sjá hann ásamt Jóhannesi Páli Páfa II, en auk þess má nefna að tveimur dögum eftir að Frans páfi tók við embætti sínu heimsótti hann Mejia, sem var rúmliggjandi eftir að hafa fengið hjartaáfall.Franska blaðið Le Monde greinir frá því að tveir menn hafi verið í bíl kardinálans þegar eiturlyfin fundust. Annar þeirra er 31 árs og hinn 41 árs. Í fréttum erlendra miðla frá málinu kemur fram að aðstoðarmaður Mejia hafi treyst mönnunum til að fara með bílinn í viðgerð og árlega skoðun. Mennirnir eru sagðir hafa keyrt bílinn til Spánar, þar sem þeir munu hafa keypt eiturlyfin. Þaðan eru þeir sagðir hafa farið til Frakklands og stöðvaði franska lögreglan þá í borginni Chambéry, við reglubundið eftirlit. Eftir stutt spjall fóru lögreglumennirnir að gruna mennina tvo í bílnum um græsku. Þeir voru beðnir að yfirgefa bílinn og þar fundust eiturlyfin og voru mennirnir handteknir. Lögreglan í Lyon rannsakar nú hvort að mennirnir tengist smyglhring. Mennirnir héldu að bílnúmeraplöturnar frá Vatíkaninu myndu vernda þá og fæla spænska og franska lögreglumenn frá því að stoppa þá. Í yfirlýsingu frá Vatíkaninu kemur fram að hvorugur mannanna sé með vegabréf þaðan og því tengist það ekki málinu lagalega.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent Þreifa fyrir sér þrátt fyrir boðaðað lokun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Þreifa fyrir sér þrátt fyrir boðaðað lokun Hormússunds Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira