Tveir handteknir í Leifsstöð vegna greiðslusvika Atli Ísleifsson skrifar 3. desember 2014 11:10 Úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vísir/Kristín María
Tveir erlendir karlmenn voru handteknir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nýafstöðnu alþjóðlegu átaki á vegum Evrópulögreglunnar Europol vegna greiðslusvika á netinu. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að spjótunum hafi sérstaklega verið beint gegn þeim sem kaupa flugmiða með illa fengnum, eða fölskum kreditkortaupplýsingum. „Aðgerðirnar fóru fram 26. og 27. nóvember síðastliðin og í þeim tóku þátt lögreglan á Suðurnesjum ásamt alþjóðadeild ríkislögreglustjóra. Er þetta í þriðja skipti sem slíkt átak fer fram undir stjórn netglæpadeildar Europol og í fyrsta skipti sem lögreglan á Íslandi tekur fullan þátt í slíkri aðgerð auk flugfélaganna WOW og Icelandair.“ Tvímenningarnir voru handteknir í tengslum við verkefnið síðastliðinn fimmtudag þar sem þeir ætluðu að fljúga frá Íslandi til Evrópu á miðum sem keyptir voru fyrir stolnar kreditkortaupplýsingar. „Þeir voru tveir af 118 einstaklingum sem voru handteknir um allan heim þessa tvo aðgerðardaga. Að minnsta kosti annar þeirra á brotaferil að baki í Evrópu en talið er að mennirnir tengist skipulagðri brotastarfsemi sem teygir anga sína víða um Evrópu. Allt að helmingur þeirra sem handteknir voru í aðgerðinni tengist annarri skipulagðri glæpastarfsemi svo sem mansali, smygli á fólki, fíkniefnasmygli, peningaþvætti og fleiri alvarlegum brotum. Verkefnið er samvinnuverkefni alþjóðlegra löggæsluyfirvalda, þvert á landamæri, auk samvinnu við flugfélög og kreditkortafyrirtæki. Yfir 60 flugfélög tóku þátt í verkefninu og náði það til 45 landa og 80 flugvalla um allan heim. Þessi samvinna er gríðarlega mikilvæg til að mæta þessari skipulögðu glæpastarfsemi sem talin er valda tjóni flugfélaganna upp á um eina billjón dala á ári hverju. Þrjár samhæfingarstöðvar voru reknar vegna verkefnisins, hjá Europol í Haag, Interpol í Singapore og Ameripol í Bogota,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira