Sölvi og félagar aftur á sigurbraut Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2014 12:19 Sölvi og félagar unnu mikilvægan sigur í dag. mynd/heimasíða ural
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn þegar Ural bar sigurorð af Arsenal Tula á útivelli í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 1-2, Ural í vil. Með sigrinum komst Ural úr umspilssæti og upp í það í 12., en liðin í 13. og 14. sæti mæta liðunum sem enda í 3. og 4. sæti í næstefstu deild í umspili um sæti í úrvalsdeildinni. Tvö neðstu liðin í úrvalsdeildinni falla hins vegar beint niður um deild. Vladimir Khozin kom Ural yfir í dag með marki á 45. mínútu og þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik tvöfaldaði Fyodor Smolov forystuna með marki úr vítaspyrnu. Sergey Maslov minnkaði muninn fyrir Arsenal Tula á 73. mínútu, en nær komust heimamenn ekki. Sölvi átti flottan leik í miðri vörn Ural. Samkvæmt tölfræðisíðunni WhoScored.com vann íslenski landsliðsmaðurinn þrjár tæklingar, fjóra skallabolta og hreinsaði boltann tólf sinnum frá marki Ural sem komst aftur á sigurbraut eftir þrjá tapleiki í röð.
Fótbolti Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Fótbolti Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti Fleiri fréttir Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira