Námsskuldir fylgja fólki inn í ellina Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 6. september 2014 07:00 „Laun háskólamenntaðra eru of lág til að vega upp kostnað við öflun þekkingar eins og staðan er núna. Við getum ekki unað við það,“ segir Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM. fréttablaðið/gva „
Íslenska námslánakerfið þarfnast heildstæðrar endurskoðunar. Nú er svo komið að námsskuldir fylgja fólki inn í ellina.“ Þetta segir Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, Bandalags háskólamanna, um niðurstöður kjarakönnunar bandalagsins sem gerð var í vor. Svör úr könnuninni benda til að 22 prósent svarenda verði enn að greiða af námslánum þegar eftirlaunaaldri er náð. Konur eru lengur að greiða af námslánum en karlar en endurgreiðslur námslána eru tekjutengdar. Rúmlega helmingi svarenda með námslán finnst endurgreiðsla þeirra íþyngjandi eða verulega íþyngjandi. „Laun háskólamenntaðra eru of lág til að vega upp kostnað við öflun þekkingar eins og staðan er núna. Við getum ekki unað við það,“ segir Guðlaug. Meirihluti svarenda kjarakönnunarinnar er með meistara- eða doktorsgráðu. Á árinu 2013 voru launatekjur og starfstengdar greiðslur félagsmanna BHM að meðaltali 548 þúsund krónur á mánuði og hækkuðu þær að nafnvirði um 4,2 prósent milli ára. Guðlaug bendir á að á sama tíma hafi launavísitalan hækkað um 5,7 prósent sem þýði að launahækkanir á íslenskum vinnumarkaði hafi verið umfram þær hækkanir sem félagsmenn BHM fengu. „Það er áhyggjuefni að hópur sem að meirihlutanum til er með meistaragráðu eða lengra nám fylgir ekki almennri launaþróun í landi sem þarf að reiða sig á eflingu þekkingargeirans til að tryggja hagvöxt.“ Formaðurinn fagnar því að leiðréttur kynbundinn launamunur dregst saman en hann minnkaði um rúm þrjú prósentustig milli 2013 og 2012. „Við hljótum að fagna jákvæðri þróun hvað varðar kynbundinn launamun. Þetta er skref í rétta átt þótt við vildum að sjálfsögðu sjá muninn minnka hraðar.“ Minnstur var launamunurinn hjá starfsfólki félagasamtaka og sjálfseignarstofnana, eða 12 prósent, en mestur hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur þar sem hann er 22 prósent. Hjá Reykjavík var munurinn 13 prósent í fyrra miðað við 24 prósent 2012. Munurinn á launum kvenna og karla hjá ríkinu var 15 prósent en 16 prósent 2012.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Fleiri fréttir Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Sjá meira