Vestrænir leiðtogar óvelkomnir í rússneskri fríhöfn Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. september 2014 13:31 Skiltið í flughöfninni í Vladivostok. MYND/MICHAEL IDOV
Vestrænir leiðtogar sem hyggjast sækja Vladivostok í Rússlandi heim munu ekki fá neina afgreiðslu í fríhöfn borgarinnar, ef marka má skilti sem komið hefur verið upp í flugstöðinni. Á skiltinu, sem sjá má á myndinni hér til hiðar, segir að í samráði við stjórnendur fríhafnarinnar séu eftirfarandi aðilar ekki velkomnir í verslunina og að þeim verði neitað um þjónustu. Því næst eru taldir upp 13 framámenn í alþjóðlegum stjórnmálum, þar af 6 frá Úkraínu. Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, er þar efst á lista. Því næst kemur kanslari Þýskalands, Angela Merkel, forsætisráðherra Kanada Steven Harper er þar einnig rétt eins og breski kollegi hans, David Cameron. Hinn franski Francois Hollande, Tony Abbott frá Argentínu og forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, eru einnig óvelkomnir í fríhöfn flugstöðvarinnar. Piotr Poroshenko, forseti Úkraínu, forsætisráðherrann Arsení Jatsenjúk og borgarstjóri Kænugarðs, Vitali Klitschko eiga einnig von á óblíðum viðtökum í flugstöðinni. Skilti sem þetta hafa sprottið upp víðsvegar um Rússland í kjölfar viðskiptaþvingananna sem Vesturlönd hafa beint gegn landinu á síðustu vikum. Flest skiltanna hafa þó verið frumstæð, oftar en ekki skrifuð á pappa sem komið er fyrir í gluggum lítilla verslana, en það sama er ekki upp á teningnum með tilkynninguna í flugstöðinni. „Það sem sló mig í þessu máli er bæði staðsetningin, á alþjóðaflugvelli í borg sem hýsti alþjóðlega tónlistarhátíð fyrir skömmu, og falleg hönnun skiltisins," segir MICHAEL IDOV, rithöfundurinn sem smellti af myndinni hér að ofan. „Ég get ekki ímyndað mér að þessu skilti hafi verið komið fyrir án samþykkis forstöðumanna flugvallarins," bætti hann við.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fleiri fréttir Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Sjá meira