Innrásin sem markaði upphafið að síðari heimsstyrjöldinni Birta Björnsdóttir skrifar 1. september 2014 20:00
Rétt fyrir klukkan sex að morgni 1.september árið 1939 hófu skipverjar á Schleswig-Holstein skotárás á borgina Gdansk. Í kjölfarið þrömmuðu svo þýskar hersveitir yfir landamærin inn í Pólland, en innrás hersveita Nasista er talin marka upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar. „Ég var átta ára þá. Og móðir mín, sem heyrði þessar fréttir með systur sinni, sagði við hana: „Þetta getur ekki verið satt”,” segir Joahim Fulczyk, íbúi Gliwice. Atburðarásina í kjölfarið þekkja flestir, en Bretar og Frakkar lýstu yfir stríði á hendur Þjóðverjum tveimur dögum eftir innrásina. Hildarleikurinn stóð yfir í næstum sex ár, um 110 milljónir manna frá 72 þjóðlöndum tóku þátt í blóðugum bardögum fyrir friði í Evrópu og talið er að á bilinu 45 til 60 milljónir manna hafi týnt lífi. Adolf Hitler hafði í aðdraganda innrásarinnar styrkt stöðu sína all verulega í Evrópu, meðal annars með því að innlima Tékkland og Austurríki undir Þriðja ríki nasistanna. Ýmis teikn voru því á lofti árið 1939 og hétu Frakkar og Bretar Pólverjum liðveislu, myndu nasistar ráðast á þá. Í lok ágúst sama ár gerðu Þjóðverjar og Sovétmenn hinsvegar með sér samning þar sem þjóðirnar ákváðu að skipta Póllandi með sér og í kjölfarið tók Hilter ákvörðun um að ráðast inn í landið. „Ögrunin hafði tilætluð áhrif í þýskum áróðri því Hitler leitaði að afsökun, ekki staðreyndum, sem gæti réttlætt innrás í Pólland. Og hann leitaði að afsökun til að réttlæta árásina í augum eigin samfélags sem, þrátt fyrir almennt aðra skoðun, var ekki fullkomlega sannfært, sérstaklega í Sílesíu, að það yrði að ráðast á Pólland,” sagði sagnfræðingurinn Damian Reclaw. Donald Tusk, forsetisráðherra Póllands, sagði við minningarathöfn í dag að Evrópubúar verði að læra af sögunni, til að hún endurtaki sig ekki, og vísaði þar til átakanna sem nú geysa í austurhluta Úkraínu.
Mest lesið Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Innlent Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Innlent Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Innlent Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Innlent Börnin eru fundin Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Innlent Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Erlent Fleiri fréttir Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Segja Frakka ætla að senda hermenn til Úkraínu Sautján ára „hermaður Hitlers” dæmdur í sjö ára fangelsi Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum AfD náði ekki að sigra eftir hrinu hneykslismála Óttast að um 2.000 hafi látist í aurskriðum á föstudag Alríkislögreglan aðstoðar við leit að munum úr British Museum Átján látnir eftir mikið óveður í miðríkjum Bandaríkjanna Hart sótt að Sunak vegna hugmynda um herþjónustu fyrir 18 ára Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Sjá meira