Fótbolti

Landsliðsmaður rekinn vegna agabrots

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jo í leik með Brasilíu á HM í sumar.
Jo í leik með Brasilíu á HM í sumar. Vísir/Getty
Atletico Mineiro hefur tilkynnt að framherjinn Jo hafi verið leystur undan samningi sínum við félagið vegna agabrots.

Jo var í leikmannahópi Brasilíu á HM í sumar og er fyrrum leikmaður Manchester City. Hann var í hópi þriggja leikmanna sem var sagt upp hjá félaginu eftir að þeir brutu „alvarlega“ af sér eftir leik í brasilísku deildinni um helgina.

Félagið útskýrði ákvörðun sína ekki frekar en það refsaði Jo fyrr á þessu ári fyrir að mæta of seint á æfingu. Hann sagði þá að það hafi verið af fjölskylduástæðum.

Jo er 27 ára gamall og var samningsbundinn Atletico til 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×