Innlent

Loka miðstöð vegna fjárskorts

Lokað Skellt var í lás um mánaðamótin. Mynd/Austurbrú
Lokað Skellt var í lás um mánaðamótin. Mynd/Austurbrú
 Upplýsingamiðstöð Austurlands á Egilsstöðum hefur verið lokað og óvíst er hvenær starfseminni verður framhaldið. Ástæðan er fjárskortur.

Svo segir í tilkynningu frá Austurbrú, sem rekið hefur miðstöðina. Þar segir að um mikla afturför í þjónustu við ferðamenn sé að ræða.

Sífellt minna fjármagn frá Ferðamálastofu Íslands auk þess sem Fljótsdalshérað ákvað nýverið að endurskoða þátt sinn í rekstrinum eru ástæður lokunarinnar, en Austurbrú leitar leiða til að opna að nýju. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×